Skoðun

Þess vegna bjóðum við okkur fram

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Við Píratar erum stundum sögð vera óvenjulegur stjórnmálaflokkur. Við stundum öðruvísi stjórnmál, til dæmis tökum við ekki við styrkjum frá fyrirtækjum því það er mikilvægt að vera óháður fjársterkum hagsmunaöflum. Við leggjum áherslu á öðruvísi mál eins og að auðvelda fólki að hafa áhrif á nærumhverfi sitt, því að við vitum að kjörnir fulltrúar vita ekki alltaf best. Við hugsum til framtíðar, því við vitum að ákvarðanir sem við tökum í dag munu hafa mikil áhrif á þau sem á eftir okkur koma.

En á sama tíma erum við ekkert sérstaklega óvenjuleg. Þvert á móti erum við hópur fólks sem endurspeglar vel íbúasamsetningu Kópavogs. Meðalaldurinn í Kópavogi er tæplega 40 ár, rétt eins og meðal fimm efstu frambjóðenda Pírata. Við erum fjölskyldufólk sem þekkir það að reka heimili og ala upp börn en mæta samt í vinnuna á réttum tíma. Við finnum hvað það er mikilvægt að öll kerfin í bænum okkar virki fyrir þau sem þurfa á þeim að halda - því mörg okkar þurfa á þeim að halda.

Við trúum því að kjörnir fulltrúar þurfi að endurspegla íbúana sem ljá þeim atkvæði sitt. Bæjarfulltrúar þurfa að vita hvernig það er að búa í bænum, þekkja þjónustuna sem bærin veitir og finna á eigin skinni hvar betur má fara. Í stuttu máli: Vera í tengslum við daglegt líf bæjarbúa. Þetta er ekki bara mikilvægt í bæjarpólitíkinni, við sjáum einfaldlega hvað getur gerst þegar rödd ólíkra hópa heyrist ekki þegar ákvarðanir eru teknar. Íbúar Kópavogs eru fjölbreyttir og því er mikilvægt að fjölbreyttar raddir heyrist við bæjarstjórnarborðið. Eins og sagt er: Ekkert um okkur án okkar.

Þetta er hægt

Þetta er líka stór ástæða þess að mörg okkar ákváðu að fara í framboð. Við viljum stuðla að auknu lýðræði og að stjórnvöld taki upplýstar ákvarðanir. Við viljum meira samráð, við viljum heyra skoðanir og álit fólks áður en við framkvæmum því þannig aukum við líkurnar á að niðurstaðan verði farsæl. Það er þess vegna sem við viljum auka aðgengi íbúa að lýðræðisverkefnum, koma á fót íbúaráðum í hverju hverfi fyrir sig og auka samráð við íbúa um mál sem þá varða.

Við viljum líka hugsa til framtíðar. Ekki bara eitt kjörtímabil fram í tímann, heldur áratugi, og þar spila skipulagsmálin lykilhlutverk. Við viljum tryggja gæði byggðar, græn svæði og heilnæmt umhverfi í Kópavogi: Mannvænt og lifandi skipulag sem tekur mið af algildri hönnun og aðgengi fyrir öll, þar sem vistvænir ferðamátar og gróður eru í forgrunni og húsnæði á viðráðanlegu verði. Við viljum að Kópavogsbær sé fjölmenningarlegt, dýravænt samfélag og barnvænasti bær landsins með jöfnu aðgengi og jafnrétti í öllu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfi.

Við erum sannfærð um að það sé hægt. Þess vegna bjóðum við okkur fram.

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Pírata í Kópavogi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×