Tónlist

Euro­vision­vaktin: Seinna undan­k­völdið keyrt í gang í Tórínó

Kristín Ólafsdóttir, Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Átján lönd stíga á sviðið í Tórínó í kvöld.
Átján lönd stíga á sviðið í Tórínó í kvöld. EBU/Vísir

Seinna undankvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2022 verður haldið í PalaOlimpico-höllinni í Tórínó í kvöld. Eurovisionvaktin á Vísi fylgist náið með þar til yfir lýkur.

Eurovisionvaktina má finna neðst í fréttinni. Við byrjum með nýjustu fréttir beint frá Tórínó þar sem Sylvía Rut og Dóra Júlía eru staddar fyrir hönd fréttastofunnar.

Þegar nær dregur keppni tekur Kristín við vaktinni og fylgist með atriðum kvöldsins; rýnir þau, dæmir og setur jafnvel í sögulegt samhengi. Ekkert er óviðkomandi - og engum verður hlíft.

Til að hita upp fyrir kvöldið er hægt að taka þetta Júrókviss um keppni kvöldsins.

Útsendingin hefst klukkan 19 að íslenskum tíma og á svið stíga fulltrúar átján landa í eftirfarandi röð: Finnland, Ísrael, Serbía, Aserbaídsjan, Georgía, Malta, San Marínó, Ástralía, Kýpur, Írland, Norður-Makedónía, Eistland, Rúmenía, Pólland, Svartfjallaland, Belgía, Svíþjóð, Tékkland.

Þau tíu lönd sem hljóta náð fyrir augum Evrópubúa og dómnefndar komast áfram á úrslitakvöld keppninnar, sem fram fer á laugardag.

Beina útsendingu EBU frá undankvöldinu má horfa á í spilaranum hér fyrir neðan.

Og í vaktinni hér fyrir neðan svo má nálgast beina textalýsingu Vísis frá keppni kvöldsins, auk viðbótarfróðleiks og Eurovision-meinfýsni af Graham Norton-kalíberi. Lokið Twitter, rífið ykkur í gang og tjúnið inn á Eurovisionvaktina í kvöld.

Ábendingar og vangaveltur sem átt gætu í vaktina sendist á [email protected].




Fleiri fréttir

Sjá meira
×