Skoðun

Þessu breytti Við­reisn

Pawel Bartoszek skrifar

Í fjölmörgum samtölum við kjósendur fæ ég stundum spurningu um hvað geri Viðreisn ólíka öðrum flokkum og hverju vera Viðreisnar í borgarstjórn hafi breytt. Það er mér bæði ljúft og skylt að svara því.

Viðreisn lofaði fyrir kosningarnar 2018 að lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði. Enginn annar flokkur setti slík loforð fram. Við náðum því í gegn og fasteignaskattarnir lækkuðu í 1,60 árið 2021, sem var ári á undan áætlun. Við ætlum að lækka þá enn meir.

Viðreisn lofaði sumaropnun leikskóla. Við stóðum við það. Hugmyndin mætti nokkurri andstöðu og ég þori að fullyrða að hún hefði ekki orðið að veruleika ef Viðreisnar nyti ekki við.

Viðreisn lofaði að gera Laugaveg að göngugötu allt árið. Aðrir flokkar í meirihlutanum voru sammála þessu en það var Viðreisn sem setti málið á dagskrá í kosningabaráttunni. Andstaðan meðal sumra hagaðila og annarra flokka var mikil en jákvæð reynsla af göngugötunni nú talar nú sínu máli. Við ætlum að lengja hana.

Viðreisn setti sölu Malbikunarstöðvarinnar Höfða á dagskrá. Nú er búið að tryggja félaginu nýja staðsetningu og samþykkja skoðun á kostum og göllum sölunnar. Aðrir flokkar voru ekki með þessa áherslu og ég þori að fullyrða að meirihluti án þátttöku Viðreisnar hefði ekki sett málið í þennan farveg.

Viðreisn hefur talað fyrir markaðslausnum. Þegar rafskútubyltingin náði til Íslands voru uppi ýmsar hugmyndir um að velja einn eða fá aðila til að þjóna borginni og setja mjög skýran ramma um starfsemina. Viðreisn hefur talað fyrir því að leyfa samkeppninni að njóta sín og ég fullyrði að þessi markaður hefði ekki orðið jafn frjáls og blómlegur ef Viðreisn hefði ekki staðið vörð um þau gildi.

Viðreisn hefur staðið vörð um ábyrgan rekstur. Þegar krísan skall á af fullum þunga var ljóst að það stefndi í erfið ár. Viðreisn lagði áherslu á skýra langtímasýn í fjármálum borgarinnar. Borgin hefur þannig sett sér markmið um hallalausan rekstur frá miðju næsta kjörtímabili og eigin skuldaviðmið í stað þeirra sem ríkið hefur tímabundið numið úr gildi.

Viðreisn hefur leitt vinnu við mótun heildstæðrar atvinnustefnu sem nú hefur litið dagsins ljós. Enginn flokkur lagði áherslu á atvinnumálin í seinustu kosningabaráttu með sama þunga og Viðreisn.

Loks má nefna að á kjörtímabilinu var unnin fagleg forgangsröðun íþróttamannvirkja. Fátt er meira umtalað en hvaða íþróttamannvirki eigi að byggja næst og hvar og því er mjög merkilegt að Reykjavíkurborg og íþróttahreyfingin í Reykjavík hafi komið sér saman um sameiginlegan lista forgangsröðunar sem byrjað er að vinna eftir. Uppbyggingin í á gervigrasvöllum Þróttar, viljayfirlýsing um nýja höll í Laugardal, stækkun aðstöðu fyrir fimleika í Árbæ og fyrirhuguð uppbygging á KR-svæðinu eru öll afleiðing þessarar skýru forgangsröðunar.

Að lokum, og það skiptir einna mestu máli, þá er Viðreisn ábyrgur flokkur sem getur unnið með öðrum og aðrir vilja vinna með. Fólk getur treyst á ábyrgð og stöðugleika í borgarstjórn þar sem Viðreisn er í sterkri stöðu.

Höfundur er í 2. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×