Skoðun

Fjár­festingar líf­eyris­sjóða, á­vöxtun og á­hætta

Yngvi Harðarson skrifar

Ávöxtun lífeyrissjóða hefur almennt verið góð sl. nokkur ár. Frá árinu 2015 hefur raunávöxtun valinna lífeyrissjóða að meðaltali verið frá um 6% og jafnvel yfir 7% þegar virði eigna er metið á gangvirði. Yfir sama tímabil hefur áhættustig í formi breytileika ávöxtunar verið tiltölulega lítið í sögulegu samhengi. Á tímabilinu sem um ræðir hafa vextir lækkað mikið ekki bara hérlendis heldur alþjóðlega. Er það á meðal atriða sem stuðlað hefur að verðhækkun eigna.

Má búast við að þetta haldi áfram til langrar framtíðar? Að öllum líkindum ekki. Það er a.m.k. afar krefjandi viðfangsefni að ná slíkum árangri í breyttu fjárfestingarumhverfi. Vextir skuldabréfa til langs tíma hafa farið lækkandi ekki einungis síðustu ár heldur áratugi. Sumir muna eftir því að raunvextir (ávöxtunarkrafa) 25 ára húsbréfa var nærri 9% haustið 1991 og vextir ríkisskuldabréfa um 0,4 prósentum lægri. Í dag er ávöxtunarkrafa álíka langra verðtryggðra ríkisskuldabréfa um 0,8% eða minna en tíundi hluti þess sem var fyrir rúmum 30 árum.

Þegar ávöxtunarkrafa lækkar þá hækkar verð skuldabréfa með föstum vöxtum. Samhliða verður nýr útgangspunktur framtíðarávöxtunar sem er hið nýja og lægra vaxtastig. Hinn nýi útgangspunktur er ekki bara lægri en fyrir 30 árum heldur einnig um helmingi lægri en fyrir 4 árum. Fjárfestingarumhverfið hefur því stórbreyst.

Fjárfestar fá áhættuálag fyrir það að fjárfesta í dreifðu safni hlutabréfa. Talið er að til langs tíma geti þetta álag numið 4-6 prósentum ofan á ávöxtun ríkisskuldabréfa. Af þeim sökum hafa lífeyrissjóðir lagt aukna áherslu á fjárfestingu í hlutabréfum eftir því sem vextir ríkisskuldabréfa hafa lækkað.

Staðan núna er sú að til þess að geta átt von á langtímaávöxtun í takt við það sem náðst hefur árin frá 2015 þyrftu sjóðirnir að fjárfesta nær eingöngu í hlutabréfum. Slíkt er óraunhæft vegna áhættu. Miðað við það að fjárfest sé 40% í hlutabréfum og 60% í skuldabréfum má rökstyðja væntingar um ca. 3,5% ávöxtun til langs tíma en ef fjárfest er 60% í hlutabréfum og 40% í skuldabréfum gæti niðurstaðan orðið ca. 4,5%. Þetta er um 2,5% lakari ávöxtun en náðst hefur á árunum síðan 2015.

Höfundur er framkvæmdastjóri Analytica og er í framboði til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins þar sem rafræn kosning stendur yfir til hádegis 22/5 nk.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×