Skoðun

Hvernig skólatösku á ég að velja fyrir barnið mitt? – skilaboð frá iðjuþjálfum

Þóra Leósdóttir skrifar

Nú styttist í að skólastarf í grunnskólum landsins hefjist aftur að loknu sumarleyfi. Þúsundir barna munu byrja sína grunnskólagöngu og trítla í skólann glöð í bragði. Að mörgu er að hyggja þegar velja á skólatösku og miðað við auglýsingar verslana er úrvalið töluvert. Iðjuþjálfar hvetja foreldra til að vanda valið enda hefur góð skólataska mikið forvarnargildi þegar kemur að heilsu og líðan barna.

Iðjuþjálfafélag Íslands fékk styrk úr Lýðheilsusjóði 2019 sem var nýttur til að uppfæra ráðleggingar iðjuþjálfa um líkamsstöðu barna og skólatöskur. Bæklingurinn er aðgengilegur á heimasíðum Embættis landlæknis og Iðjuþjálfafélags Íslands. Þrátt fyrir að áhersla sé lögð á skólatöskur fyrir yngri börn þá eiga flest þessi atriði einnig við um stálpuð börn og ungmenni.

Iðjuþjálfar myndu vilja sjá mun fleiri framhalds- og háskólanemendur nýta sér góða bakpoka eða töskur á hjólum. Allt of algengt er að sjá nemendur burðast með þungar hliðartöskur yfir aðra öxlina á leið í skólann með tilheyrandi álagi á stoðkerfið. Hér er gripið niður í nokkrar ráðleggingar sem fram koma í bæklingnum.

Að velja réttu skólatöskuna:

  • Í skólatöskunni þarf að vera gott pláss fyrir nauðsynleg gögn.
  • Rétt stærð miðað við stærð og vöxt barnsins. Taskan ekki vera breiðari en efra bak barnsins og ekki ná niður fyrir mjóbak.
  • Axlarólar þurfa að vera vel bólstraðar og með smellu yfir bringuna.
  • Það er kostur að hafa mittisól.
  • Barnið ætti ekki að bera skólatösku sem vegur meira en 10% af líkamsþyngd þess.

Að raða í skólatöskuna:

  • Þyngstu hlutirnir sem næst baki barnsins.
  • Hlutir í töskunni þurfa að vera stöðugir þannig að þeir renni ekki til.
  • Fara daglega yfir það sem barnið á að hafa í töskunni, bara það nauðsynlegasta.
  • Sund- og íþróttaföt fara ofan í töskuna í stað þess að festa íþróttapoka yfir hana.
  • Þá daga sem taskan er yfirhlaðin getur barnið borið hluta í fanginu til þess að draga úr álagi á bakið.
  • Foreldrar þurfa að aðstoða barnið við að raða í skólatöskuna og stilla hana rétt til að forðast álagseinkenni og verki.

Að stilla skólatöskuna:

  • Nota báðar axlarólar og stilla þannig að taskan liggi þétt við bak barnsins en án þess að valda óþægindum.
  • Notið mittisólina til að þunginn dreifist jafnt á líkamann.
  • Neðsti hluti töskunnar á að hvíla við mjóbakið og ekki ná lengra en 10 cm niður fyrir mitti.

Of þung og ranglega stillt skólataska:

  • Finnur barnið þitt fyrir verkjum í baki eða öxlum?
  • Að bera of þunga eða rangt stillta tösku getur valdið bakverk, höfuðverk og vöðvabólgu.
  • Í öxlum og hálsi eru margar æðar og taugar. Ef of mikill þrýstingur er á þessu svæði getur það valdið sársauka og dofa á hálsi, handleggjum og höndum.
  • Að bera skólatöskuna á annari öxlinni leiðir til þess að hryggsúlan sveigjist og slíkt getur valdið óþægindum og verkjum.

Höfundur er formaður Iðjuþjálfafélags Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×