Skoðun

Stríðið er tapað

Lenya Rún Taha Karim skrifar

Stríðið gegn vímuefnum er tapað. Það virðist ekki skipta máli hversu miklum peningum og starfskröftum við verjum í það, einhvern veginn standa vímuefnin alltaf upp sem sigurvegarinn. Ekki einu sinni langstærsta haldlagning á kókaíni í sögunni er talin hafa nein teljandi áhrif á vímuefnamarkaðinn. Sölumenn hafa alla vega ekki miklar áhyggjur: „Það er alltaf nóg til af dópi.“

Það er eflaust góður vilji á bakvið það að ráðast í stórar og umfangsmiklar aðgerðir til að gera vímuefni upptæk. Vímuefni geta verið skaðleg og því auðvelt að sjá hvers vegna reynt er að minnka framboðið á þeim. Sú aðferð að verja takmörkuðum tíma og fjármunum lögreglunnar í slíkar aðgerðir virðist þó ekki skila árangri. Þið þurfið ekki að trúa mér fyrir því, lögreglan efast sjálf um það eins og heyra mátti í fréttum í gær.

Ef ein aðferð virkar ekki þá hljótum við að þurfa að skoða aðrar. Það er galið að endurtaka sömu leiðina aftur og aftur en búast alltaf við annarri niðurstöðu. Með því að beina sjónum okkar að annars konar nálgun getur ríkið sparað töluvert fjármagn sem annars færi í þessar aðgerðir og hægt væri að nýta til að stuðla að meiri skaðaminnkun.

Aðgerðir sem virka

Ef stjórnvöld viðurkenna loksins að hvorki framboðið né eftirspurnin eftir vímuefnum fari minnkandi í bráð, þá verður hægt að grípa til annarra aðgerða. Fyrsta skrefið er afglæpavæðing. Með afglæpavæðingu er byrðunum létt af vímuefnaneytendum - neytendum sem eiga heima í heilbrigðiskerfinu en ekki refsivörslukerfinu. Með afglæpavæðingu og skaðaminnkun að leiðarljósi verður hægt að stuðla að meiri fræðslu og forvörnum, í stað þess að nýta fjármagnið í að grípa til aðgerða sem hafa ekki nokkur áhrif á markaðinn. Leggja áherslu á að hjálpa fólki sem vill hætta neyslunni og koma í veg fyrir að fleiri verði háð til að byrja með. Þetta er nálgun sem hefur sannað gildi sitt víða um heim. Nálgunin sem íslensk stjórnvöld hafa hins vegar beitt er einfaldlega ekki að skila árangri.

Óskandi væri að vandinn væri ekki svona djúpstæður og teygði sig ekki þvert á heimsálfur og þjóðfélagshópa en nú er komið gott af afneitun og tími til kominn að grípa til aðgerða. Skaðaminnkandi aðgerða. Það gerir ekki gott fyrir neinn, ekki neytendur, lögregluna né samfélagið, að halda áfram á þeirri vegferð sem við höfum verið á hingað til.

Flest öll þekkjum við einhvern sem hefur neytt vímuefna, jafnvel verið háður vímuefnum. Þetta vandamál er ekki eins fjarlægt okkur og við höldum heldur er þetta alls staðar, á öllum stigum samfélagsins. Við getum ekki lokað augunum og vonað að vandamálið hverfi heldur þurfum við að sætta okkur við veruleikann og prófa nýja nálgun. Hverju höfum við að tapa?

Höfundur er varaþingmaður Pírata.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×