Albumm

Dimma fagnar 10 ára afmæli plötunnar Myrkvaverk

Steinar Fjeldsted skrifar

Nú í haust eru 10 ár liðin frá því að DIMMA gaf út plötuna Myrkraverk en hún markaði tímamót á ferli sveitarinnar þar sem allir textar voru á íslensku. Myrkraverk fékk mjög góðar viðtökur og má með sanni segja að þar hafi flug DIMMU hafist fyrir alvöru.

Í tilefni þessa afmælis mun DIMMA spila á nokkrum tónleikum, þar sem Myrkraverk verður leikin í heild sinni ásamt öðrum vinsælum ópusum sveitarinnar. Mörg þessara laga hafa ekki heyrst lengi á tónleikum og ólíklegt að þau verði leikin aftur í bráð.

Næstu tónleikar DIMMU sem þegar eru komnir í sölu á tix.is eru í Bæjarbíói á föstudaginn 9. september, Edinborgarhúsinu á Ísafirði þann 24. september og svo hápunkturinn; Stórtónleikar í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Tónleikarnir í Íþróttahöllinni verða mikið sjónarspil og þeir allra flottustu sem DIMMA hefur haldið síðan sveitin var með tvenna uppselda útgáfutónleika í Eldborg fyrir plötuna Þögn.

Það er margt sem myrkrinu býr í..

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.