Skoðun

Rektor MH „eins og kúkur“ í miðri byltingu

Matthías Tryggvi Haraldsson skrifar

Þessa dagana ólgar bylting innan veggja Menntaskólans við Hamrahlíð, þar sem ég á systur og mágkonu meðal nemenda, þar sem barnsmóðir mín og unnusta, hún Brynhildur mín, var í námi þegar henni var nauðgað fyrir meira en tíu árum. 

Byltingin er mikilvæg og við eigum að hlusta á nemendur sem keyra hana áfram af hugrekki og réttsýni. Krafan er skýr og hávær um að stjórnendur skólans stigi fast til jarðar og standi með þolendum. Þess vegna eru vonbrigðin, sem ég finn í dag, ólýsandi. 

Þeir heita Steinn Jóhannsson, rektor skólans, og Pálmi Magnússon, sem gegnir starfi áfangastjóra, sem hafa skitið upp á bak í þessum málum. Klúðrið hefur bersýnilega gengið á samfleytt í meira en tíu ár svoleiðis að vanhæfni skólastjórnenda bergmálar í sársaukaþrungnum sögum fjölda þolenda, þar á meðal Brynhildar minnar, Elísabetar vinkonu sem tók sitt eigið líf og enn í dag í mótmælum nemenda. 

Gleymum því ekki að meira en 70 prósent þeirra sem leita til Stígamóta urðu fyrst fyrir ofbeldi á menntaskólaaldri, ef ekki fyrr.

Eitt nýlegasta dæmið eru viðbrögð þeirra við þessum mikilvægu tímamótum. Þegar löngu tímabær Metoo-bylgja menntaskólanema er í þann mund að rísa tekst öðrum þeirra að ropa upp úr sér þvílíkri vanvirðingu og dirfast að kalla viðburðinn „hysteríu“. Slík ummæli afhjúpa heilan heim úreltra viðhorfa og sýna að þeir eiga ekkert erindi í þessa viðkvæmu umræðu, hvað þá að vinna með ungmennum. Gleymum því ekki að meira en 70 prósent þeirra sem leita til Stígamóta urðu fyrst fyrir ofbeldi á menntaskólaaldri, ef ekki fyrr. Finnst Pálma 70 prósent þeirra sem leita til Stígamóta vera hysterísk? 

Þetta er kannski ósanngjörn spurning en stjórnendur skólans hafa ekkert gert til að svara henni hingað til. Þeir neita að tjá sig um þetta opinberlega og snubbótt yfirlýsing um verkferla er enginn sigur. Þá gat Steinn rektor varla nefnt orðið kynferðisofbeldi á nafn á skólafundinum, sem átti að vera sönnun þeirra um verkferla og fagmennsku. Þess í stað var rektorinn að sögn áreiðanlegra heimildarmanna minna „eins og kúkur“. Skólastjórnendur MH, girðið ykkur í brók, biðjið þolendur afsökunar eins og þið meinið það eða víkið úr starfi. 

Höfundur er maki og bróðir núverandi og fyrrverandi nemenda í MH.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×