Skoðun

Ís­lenska í ensku hag­kerfi

Einar Freyr Elínarson og Tomasz Chochołowicz skrifa

Umfangsmiklar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi á stuttum tíma. Breytingarnar koma í kjölfar þess að okkur hefur tekist að byggja upp öfluga atvinnugrein sem þjónustar fjölda ferðamanna sem sækja Ísland heim. 

Ferðaþjónustan er mannaflsfrek atvinnugrein. Ef ekki væri fyrir allan þann fjölda erlendra íbúa sem hingað hafa flutt víðs vegar að úr heiminum þá hefðum við aldrei komist á þann stað sem við erum á í dag. Þrátt fyrir eldgos, jarðhræringar og heimsfaraldur þá hefur ferðaþjónustan haldið áfram að vaxa og dafna. Líklega er þetta líka í fyrsta skipti frá því að sjávarþorp spruttu upp meðfram sjávarströndinni sem markviss atvinnuuppbygging á sér stað í dreifðum byggðum. 

Þessari þróun fylgja ýmsar áskoranir. Við þurfum að stórauka framboð af íbúðarhúsnæði og það þarf að auka þjónustuframboð samhliða íbúafjölgun víðs vegar um landið. Eins þurfum við að takast á við umfangsmiklar samfélagsbreytingar. Mýrdalshreppur setti þess vegna nýlega á fót enskumælandi ráð til þess að gefa öllum íbúum raunverulegan kost til þess að hafa áhrif og koma skoðunum sínum á framfæri. Framtakið er kannski umdeilanlegt í hugum sumra en í okkar huga þurftum við að nálgast málin af raunsæi og sanngirni gagnvart íbúunum okkar. 

Allt tal um að það sé bara sjálfsagður hlutur að leggja það á sig að læra íslensku þegar maður flytur hingað til lands til að starfa í ferðaþjónustu lýsir miklu skilningsleysi á aðstæðum fólks. 

Menningar- og viðskiptaráðherra hefur talsvert rætt þær breytingar sem orðið hafa á íslensku hagkerfi á síðustu árum. Ísland býr orðið við ferðaþjónustuhagkerfi og ferðaþjónustan er að langmestu leyti enskumælandi atvinnugrein. 

Nýleg grein eftir formann Íslenskrar málnefndar vakti verðskuldaða athygli. Þar var lýst þeirri ógn sem íslensk tunga stendur frammi fyrir vegna þeirra samfélagsbreytinga sem áður var lýst. Greinin er raunsæ nálgun á viðfangsefnið og við fögnum þessari umræðu. 

Verði engu breytt þá er líklega hárrétt að fáir hvatar verða fyrir flesta innflytjendur sem starfa við ferðaþjónustu til þess að læra íslensku. Eigi íslenskunámi alltaf að fylgja vinnutap eða minni tími frá fjölskyldu og vinum þá verður þróunin líklega mjög hæg eða í öfuga átt. Við skorum á ríkisstjórnina og Alþingi að bregðast við með því að stórauka framlög til fjölmenningarmála sem miða að því að bæta aðgengi að íslenskunámi og innleiða hvata fyrir starfsfólk og fyrirtæki í ferðaþjónustu þannig að raunveruleg breyting muni eiga sér stað. 

Spurningin sem við verðum að spyrja okkur er líklega sú: þykir okkur nægilega vænt um tungumálið okkar til þess að við séum tilbúin að fjárfesta í því? 

Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps

Tomasz Chochołowicz formaður Enskumælandi ráðs í Mýrdalshreppi





Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×