Innlent

Vilja að öll sambærileg vistheimili sæti rannsókn

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Þær Gígja Skúladóttir, Íris Ósk Friðriksdóttir og Brynja Skúladóttir sem voru beittar ofbeldi á Laugalandi Varpholti segja greinargerð um starfsemina ekki taka á öllum þáttum. Þær komu fyrir velferðarnefnd Alþingis í morgun til að fara yfir vankanta hennar. Þá leggja þær til að sambærileg heimili verði rannsökuð vegna vísbendinga um að ofbeldi hafi líka átt sér stað þar.
Þær Gígja Skúladóttir, Íris Ósk Friðriksdóttir og Brynja Skúladóttir sem voru beittar ofbeldi á Laugalandi Varpholti segja greinargerð um starfsemina ekki taka á öllum þáttum. Þær komu fyrir velferðarnefnd Alþingis í morgun til að fara yfir vankanta hennar. Þá leggja þær til að sambærileg heimili verði rannsökuð vegna vísbendinga um að ofbeldi hafi líka átt sér stað þar. Vísir/Vilhelm

Þrjár konur sem beittar voru ofbeldi á Varpholti á Laugalandi segja gríðarlega mikilvægt að sambærileg vistheimili frá sama tíma verði rannsökuð. Þær gagnrýndu skýrslu sem var unnin um málið í velferðarnefnd í morgun.

Í haust kom fram greinargerð um meðferðarheimilið í Varpholti og Laugalandi sem var starfrækt á árunum 1997 til 2007. 

Það var eftir að fjöldi kvenna steig  fram og greindi frá ofbeldi sem þær urðu fyrir á heimilinu. 

Niðurstaðan var m.a. þær hefðu orðið fyrir andlegu ofbeldi. 

Konurnar hafa gagnrýnt að greinargerðin hafi ekki tekið á öllum þáttum málsins. Þær voru kallaðar fyrir velferðarnefnd Alþingis í morgun til að koma athugasemdum sínum á framfæri.

„Við gerðum athugasemdir við vinnslu skýrslunnar. Það þarf að breyta verkferlum við gerð svona skýrslna. Kynbundið og líkamlegt ofbeldi var ekki viðurkennt, það voru engar sjúkra-eða lögregluskýrslur í greinargerðinni. Það er skrítið að leggja í svona vinnu án þess að hafa heimild til að afla slíkra gagna sem geta staðfest framburð okkar. Við viljum sjá breytingar á svona greinargerðum,“ segja þær Gígja Skúladóttir, Íris Ósk Friðriksdóttir og Brynja Skúladóttir sem segjast hafa verið beittar ofbeldi á Laugalandi Varpholti.  

Nauðsynlegt sé að önnur heimili sæti rannsókn

Þá sé nauðsynlegt sé að rannsaka svipuð heimili frá sama tíma.

„Krafa okkar er að það verði gerð rannsókn á sambærilegum heimilum sem störfuðu samkvæmt sömu hugmyndafræði, í sama eftirlitsleysi og engar kröfur voru gerðar til starfsmanna. Við vitum að það var ofbeldi á slíkum heimilum. Það voru ekki menntunar-eða hæfniskröfur. Ungmenni voru tekin í langan tíma frá heimilum meðal dvalartími var 490 dagar með engu eftirliti, þetta þarf að skoða,“ segja þær. 

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er málið til skoðunar í mennta-og barnamálaráðuneytinu.

Stöð 2 hefur ákveðið að gera þætti þar sem fjallað verður um vistheimili á Íslandi. Þáttagerðin er hafin, þegar er verið að skoða sögu vöggustofanna við höldum svo áfram eftir því sem fram vindur. Þeir sem hafa sögu að segja og vilja koma upplýsingum á framfæri um vistheimili, vinsamlega sendið okkur á netfangið [email protected].


Tengdar fréttir

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í æsku á vegum barnaverndar. Laugaland átti að vera þeim öruggur staður. Að upplifun þeirra hafi verið sem skyldi er óafsakanlegt. Það er nauðsynlegt að samfélagið allt læri af þessari reynslu og tryggi að slíkt geti aldrei aftur átt sér stað.

And­legt of­beldi og niður­læging á Lauga­landi

Eftirlitsskylda barnaverndaryfirvalda brást þeim sem dvöldu á meðferðarheimilinu Varpholti/Laugalandi. Yfirvöld hefðu átt að bregðast við ákalli íbúa og skerast í leikinn þegar ljóst var hve mikið álag hvíldi á starfsfólki. Yfirgnæfandi meirihluti fyrrum vistbarna upplifði andlegt ofbeldi við dvölina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×