Skoðun

Gefðu barninu þínu Heilla­gjöf og taktu sam­talið

Ellen Calmon skrifar

Börnin okkar eru helstu aðgerðasinnarnir þegar kemur að því að vekja heiminn til vitundar um loftslagsvandann og mikilvægi þess að við honum sé brugðist tafarlaust.

Nú er tími gjafa og yfirflóðs af auglýsingum sem segja okkur hvað við þurfum að eignast og hvað við þurfum að kaupa. Stanslaust er verið að ýta undir aukna neyslu sem veldur aukinni sóun og þar með auknum útblæstri gróðurhúsaloftegunda sem hefur bein áhrif á loftslagið.

Endalaus velmegun og fleiri gjafir

Þrátt fyrir að vera meðvituð um loftslagsvandann þá glepjast börnin engu síður en fullorðna fólkið. Við sem búum við vestræna velmegun þurfum mörg hver að hafa okkur öll við til að sporna gegn löngun og gervivöntun í ýmsan óþarfa. Óþarfa sem stundum er framleiddur á mjög óumhverfisvænan máta, hefur langt, dýrt og djúpt kolefnisspor. Það er stundum erfitt að segja nei.

Hin hliðin, að láta sig dreyma um vel útilátna máltíð

Hin hliðin eru svo það fólk og þau börn sem búa við fátækt. Fólk sem ekki hefur efni á þessum hlutum sem í sí og æ er verið að ota að okkur í auglýsingum. Fólk sem þarf og vantar nauðsynjar og jafnvel margt annað. Börn þeirra geta rétt leyft sér að dreyma um dótið en vantar mögulega föt, skó, almennilegan og næringarríkan mat. Þetta eru börn sem mögulega dreymir oftar um vel útilátna máltíð en dótagjafir.

Það er mikilvægt að við séum öll meðvituð um að við búum í samfélagi þar sem fólk býr við ólíkan kost og á Íslandi ríkir ekki sannur jöfnuður þegar kemur að lífsgæðum, fæði og húsnæði. Þar eru börnin í viðkvæmustu stöðunni en fátækt hefur afdrifaríkar afleiðingar á líf þeirra.

Gefðu barninu Heillagjöf og taktu samtalið

Rikka og Robbi ríku eru foreldrar sem geta veitt börnum sínum allt veraldlegt. Það er mjög mikilvægt að þegar þau tala við jólasveininn að þau komi þeim skilaboðum rækilega á framfæri við Sveinka að hann gæti hófs í skógjöfum. Því það er algjörlega ómögulegt að barn sem býr við fátækt og hefur upplifað margþætta mismunun vegna þess, upplifi einnig mismunun af hálfu jólasveinsins. Ég bið því alla jólasveina, foreldra og forsjáraðila að huga að hófsemi.

Barnaheill selur Heillagjafir sem eru tilvaldar gjafir til barna. Það er öllum börnum hollt að fá Heillagjöf og gott er að gjöfinni fylgi samtal. Gjöfin er í raun kort með mynd af til dæmis af ungbarnateppi eða öðru því sem verður fyrir valinu.

Samtalið sem fylgir gjöfinni ætti svo að fjalla um af hverju við færum barninu okkar Heillagjöf. Því með Heillagjöf er barnið að gefa öðru barni möguleika á betra lífi. Heillagjöfin getur bjargað lífi barns, verndað barn frá ofbeldi, komið barni í stríðshrjáðu landi í öruggt skjól og svo mætti lengi telja. Þá er Heillagjöfin einnig umhverfisvæn. Gjöfina er hægt að nota til að ræða mikilvægi samfélagslegrar ábyrgðar okkar allra og hvernig við getum í sameiningu unnið gegn loftslagsvánni með því að endurskoða okkar eigin neyslu. Heillagjöf er vernd gegn ofbeldi á börnum og liður í loftslagsaðgerðum.

Gleðilega hátíð! 

Höfundur er framkvæmdastýra Barnaheilla.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×