Skoðun

Næsta stopp er: Há­skóla­strætó

Viktor Pétur Finnsson skrifar

Það tekur fjörutíu mínútur að labba frá Háskólatorgi í Stakkahlíð. Það tekur síðan tuttugu mínútur að ganga þaðan í Læknagarð og aðrar tuttugu mínútur frá Læknagarði aftur á Háskólatorg. Það er langt á milli bygginga Háskóla Íslands og við í Vöku teljum okkur vera með lausnina við þessum vanda. 

Eins og fram kom í grein Júlíusar Viggós, formanns málefnanefndar Vöku leggjumst við gegn því að auka álögur á þá stúdenta sem velja sér eða þurfa að ferðast um á bíl. Sitjandi meirihluti í Stúdentaráði HÍ hefur talað fyrir því síðastliðin ár að gjöld á bílastæði við háskólann verði hækkuð. Til stendur að leggja gjaldskyldu á bílastæðin á malarplaninu og að bílastæði í boganum fyrir framan aðalbygginguna verði tekin burt. 

Okkur í Vöku finnst þetta ganga gegn hagsmunum stúdenta eins og allar hækkanir á gjöldum sem snúa að stúdentum. Stjórn Vöku telur að ekki ætti að ráðast í slíkar aðgerðir heldur bæta þurfi aðra samgöngumáta. 

Strætóleið fyrir stúdenta 

Bæta þarf strætóleiðir til og frá háskólanum en einnig þarf að leggja fleiri göngu- og hjólastíga háskólasvæðinu. Til þess að ekki reynist hættulegt að nýta sér samgöngur við háskólann þarf að auka þjónustu á háskólasvæðinu með því að moka, salta og sanda göngustíga. Mikil slysahætta getur myndast á veturna fyrir fótgangandi, hjólandi eða þá sem kjósa að ferðast á rafskutlum. Þessi þjónusta hefur einfaldlega setið á hakanum. 

Við í Vöku leggjum til svokallaðan Háskólastrætó. Sá strætó væri í raun ný leið í leiðakerfi strætó sem væri sérsniðin að þörfum háskólanema. Leiðin myndi ganga milli allra stúdentagarða og stoppa við Háskólatorg, Þjóðarbókhlöðu, Læknagarð, Stakkahlíð, Skipholt, Háskólabíó, Eirberg, Haga og við Hlemm eða tengingu við aðrar leiðir. Leiðin myndi því þjónusta alla stúdenta og minnka biðtíma á sama tíma. Háskólaleið eins og þessi, myndi auka hvata nemenda til þess að nota almenningssamgöngur. 

Leiðin, sem er í raun nauðsynleg fyrir stúdenta, er til þess gerð að stúdentar þurfi sjaldnar að skipta um strætó á leið sinni í skólann. Einnig væri auðveldara fyrir nemendur í Stakkahlíð og Læknagarði að koma sér á milli staða á skilvirkan hátt. Margir háskólar erlendis hafa eigin háskólaleið og í mörgum tilfellum fleiri en eina. Háskólastrætó ætti einnig að hjálpa þeim sem búa á stúdentagörðum víðs vegar um bæinn að komast til og frá skóla með beinni leið. Þetta yrði mikið framfaraskref fyrir hagsmuni námsmanna. 

Með þessu viljum við koma til móts við þá nemendur sem búa í úthverfum með því að fella niður gjaldskyldu, og alla þá háskólanema sem vilja nýta sér almenningssamgöngur. Við í Vöku viljum að samgöngur henti sem flestum. Þess vegna berjumst við fyrir bættum strætóleiðum, gönguog hjólastígum, um leið og við leggjum áherslu á að bílastæðagjöld verði ekki sett á við háskólann. 

Framkvæmd Háskólastrætós er auðveld þar sem innviðir eru til staðar og hvorki þarf að byggja stoppistöðvar né breyta núverandi kerfi. Er hugmyndin bæði gerleg og ódýr fyrir Reykjavíkurborg, Strætó og háskólann. 

Þetta er eitt af þeim málum sem okkur í Vöku finnst að hagsmunafélög stúdenta ættu að setja á oddinn. Framför á þessu sviði myndi stuðla að miklum umbótum í þágu námsmanna við HÍ. 

Höfundur er formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×