Skoðun

Sannleikurinn um Vestfirði

Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar

Þegar landkrabbinn og Sunnlendingurinn ég réð sig til starfa til Háskólaseturs Vestfjarða á Ísafirði rak mörg af mínum ættmennum og vinum í rogastans. Þeim fannst sumum algjört glapræði að hafa vetursetu á þessum guðsvolaða Vestfjarðakjálka sem væri nær einangraður og myrkvaður níu mánuði á ári. Ég reyndi nú að leiðrétta ýmsar ranghugmyndir strax, það sér jú ekki til sólar á tímabili en það er nú bara í nokkrar vikur og á sama tíma verður oft ekki dagbjart annarsstaðar á landinu þótt heita megi að sól sjáist á himni, þegar skammdegið og vetrargráminn eru allsráðandi. Og “einangrunin” hefur meira með flugþjónustu og skort á varaflugvelli að gera en hræðileg vetrarveður og snjóþunga. Skemmst er frá því að segja að ég skrapp til höfuðborgarinnar um miðjan desembermánuð í stafalogni og naut þess að líta yfir Vestfirðina í vetrarsól út um flugvélargluggann.

Aksturssamgöngur innan Vestfjarða hafa einnig verið mikið bættar frá því ég kom hingað fyrst fyrir um þremur áratugum síðan, og enn er verið að. Nú getur fólk hæglega búið á Flateyri eða í Bolungarvík og starfað á Ísafirði, Suðureyri eða Þingeyri. Vestfirðingar “skreppa” í fjölskylduboð á Akureyri og fótboltamót í Borgarnesi sömu helgina ef þarf og fara í stutter ferðir til evrópskra stórborga rétt eins og aðrir Íslendingar.

Háskólanám á staðnum

Eitt á ég samt erfitt með að leiðrétta, og það er HVAR ég starfa. Nýlega var ég stödd í hópi með mínum sprenglærðu og eldkláru vinkonum sem gerðu þá uppgötvun að í fyrsta lagi starfaði ég ekki fyrir “nýja skólann á Flateyri” og í öðru lagi að Háskólasetur Vestfjarða væri ekki útibú frá öðrum háskólum landsins. Háskólasetur Vestfjarða er nefnilega sjálfseignarstofnun sem heldur úti framhaldsnámi á háskólastigi og rannsóknum, og hefur gert í tæpa tvo áratugi. Hér er í boði meistarnám í skipulagi, stjórnun og þróun hafsvæða, sjávarbyggða og annarra smábyggða, og höldum við Háskólahátíð á Hrafnseyri 17. júní ár hvert þar sem fólk útskrifast með MA eða MRM gráður. Námið fer allt fram hér á Ísafirði, og á ensku enda er nemendahópurinn fjölþjóðlegur og mjög fjölbreyttur. Námskeiðin okkar eru kennd í 1-2 vikna lotum og opin öllum, bæði nemendum við aðra háskóla – sem vantar valeiningar - og fólki úr atvinnulífinu sem vill bæta við þekkingu sína. Hér er að vaxa upp öflugt fræðasamfélag og má finna fyrrverandi nemendur Háskólaseturs víða, bæði í störfum og sprotafyrirtækjum hér á Vestfjörðum sem og víðar um heiminn, s.s. í Alaska og Afríkulýðveldinu Kongó.

Samfélögin í Ísafjarðarbæ njóta góðs af veru háskólanemanna, sem mörg hver ílendast hér á þessu fallega landsvæði og lita bæði atvinnu- og mannlífið hér, og yfirstandandi bygging námsmannaíbúða bæði á Ísafirði og Flateyri er skýrt merki um uppgang, bjartsýni og kraft hér á kjálkanum. Ég vona að þessi stutti pistill spari mér leiðréttingar og útskýringar í framtíðinni en þið getið fundið nánari upplýsingar um Háskólasetur Vestfjarða á heimasíðunni okkar. Þessa dagana er tekið við umsóknum fyrir næsta skólaár svo ég segi bara, velkomin vestur!

Höfundur er markaðs- og vefstjóri Háskólaseturs Vestfjarða.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×