Skoðun

Nokkrar spurningar til skatta­yfir­valda um skatt­lagningu og skráningu al­manna­heilla­sam­taka

Jónas Guðmundsson skrifar

Skattlagning almannaheillastarfs tók stakkaskiptum fyrir rúmu ári síðan með breytingum á ýmsum lögum um skatta og gjöld sem snerta almannaheillasamtök og styðjendur þeirra. Almannaheillasamtök fögnuðu þessum breytingum og á fimmta hundrað samtaka hafa skráð sig á almannaheillaskrá Skattins. Það gerðu þau þrátt fyrir að framkvæmd skattabreytinganna hafi verið umdeild og tilraunir almannaheillasamtaka til að fá sniðna af ýmsa vankanta hafi borið takmarkaðan árangur.

Eitt af því sem Almannaheill, samtök þriðja geirans, hafa beint til Skattsins snertir einmitt skráningu á almannaheillaskrá. Mörg almannaheillasamtök hafa kvartað yfir því að hafa verið neitað um skráningu með vísan til sértekna sem félögin afla. Almennt er almannaheillasamtökum heimilt að afla vissra sértekna innan tekjuskattslaga; viðmiðanir skattayfirvalda virðast vera þrengri og ósveigjanlegri en tilefni er til. Því hefur verið beint til Skattsins að endurskoða þessar viðmiðanir, opna leið fleiri félaga á almannaheillaskrá og gera með því almenningi kleift að styrkja þessi félög gegn skattaafslætti, eins og alþingi ætlaðist til með skattalagabreytingunum.

Önnur spurning Almannaheilla til skattayfirvalda snýst um skilgreiningu á gjöfum sem eru hæfar til skattaafsláttar. Minningargjafir eru t.d. ekki taldar með—þær eru sannarlega skilyrðislausar gjafir til félaga og gefandi fær ekkert í staðinn. Af hverju eru minningargjafir ekki teknar með?

Þriðja spurningin snýst um fjármagnstekjuskatt, sem almannaheillasamtök eru undanþegin samkvæmt breyttum lögum. Hvers vegna þarf að leggja skattinn á og endurgreiða hann síðan ári seinna, með tilheyrandi flækjum og tekjuskerðingum? Samkvæmt lagabókstafnum má fella skattinn niður strax við staðgreiðslu—hvers vegna er það ekki haft þannig?

Fjórða spurningin snertir skil á gögnun og miðlun upplýsinga um gjafir og styrki. Almannaheillasamtök þurfa að leggja á sig mikla vinnu við að koma upplýsingum um almenna styðjendur sína inn í form Skattsins til þess að skattgreiðendur fái að njóta skattafsláttar—með vinnubrögðum sem margir telja fremur forn. Almannaheill hafa beint því Skattsins hvort ekki sé hægt að birta sérhannað excel eða xml-skjal á vef Skattsins sem auðvelt væri að flytja upplýsingar í, líkt og gert er vegna bankaupplýsinga í mörgum tilfellum.

Að lokum hafa Almannaheill spurt hvort ekki megi fresta endurskráningu á almannaheillaskrá Skattsins, sem á að fara fram fyrir 15. febrúar n.k., á meðan þessir hnökrar eru á framkvæmd skattabreytinganna?

Við þetta má bæta að leiðbeiningar Skattsins um þessar breyttu skattareglur eru að dómi almannaheillasamtaka ófullnægjandi—í sumum tilvikum beinlínis villandi. Við höfum ítrekað beðið um að þær verði lagfærðar.

Almannaheill hafa, fyrir hönd aðildarfélaga sinna, sent lengra erindi til Skattsins um þessar misfellur í framkvæmd mikilvægra lagabreytinga og birt á heimasíðu sinni. Hættan er sú að gildi lagabreytinganna fyrir ári síðan sé rýrt með ófullnægjandi framkvæmd og með því komið í veg fyrir þann árangur af þeim sem vonast var eftir. Þeir gallar sem bent hefur verið á snerta tugi þúsunda skattgreiðenda í landinu, og viðkvæma samfélagslega starfsemi sem þeim er annt um. Eftir því ættu þeir þingmenn sem beittu sér fyrir lagabreytingunum að taka. Engin viðbrögð hafa hins vegar borist frá skattayfirvöldum um margra mánaða skeið við þeim eðlilegu ábendingum sem felast í spurningum Almannaheilla.

Höfundur er formaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×