Skoðun

Ferða­menn fagna grænni orku­vinnslu

Jóna Bjarnadóttir skrifar

Græna orkan er grundvöllur þeirra lífsgæða sem við búum við í dag á Íslandi og hluti af þeirri upplifun sem ferðamenn sækja í. Nær allir erlendir ferðamenn sem hingað koma, eða 96%, eru jákvæðir gagnvart endurnýjanlegum orkugjöfum á Íslandi. Þar af eru 80% mjög jákvæð en innan við 1% neikvæð.

Þetta kemur fram í skoðanakönnun meðal erlendra ferðamanna sem Gallup vann fyrir Landsvirkjun. Gera má ráð fyrir að með aukinni áherslu á umhverfismál og sjálfbærni muni græna orkan verða enn mikilvægari en hún er nú þegar fyrir ímynd lands og þjóðar.

Þörf er á aukinni raforku til að mæta eftirspurn vegna loftslagsmarkmiða stjórnvalda, vegna orkuskiptanna, fólksfjölgunar og atvinnuuppbyggingar. Til mikils er að vinna fyrir loftslagið, náttúruna og samfélagið, en við þurfum að flýta okkur hægt og vanda til verka.

Við höfum áralanga reynslu af farsælli uppbyggingu og rekstri virkjana sem skilar fjölbreyttum ávinningi til samfélagsins. Um leið erum við meðvituð um að virkjun náttúruauðlinda hefur áhrif á náttúru landsins og breytir ásýnd þeirra svæða sem tekin eru undir orkuvinnslu.

Það er okkar reynsla að orkuvinnsla og fjölbreytt önnur landnýting fer vel saman. Má þar nefna landgræðslu, rekstur þjóðgarða og ferðamennsku. Erlendir gestir okkar eru á sama máli.

Jákvæð upplifun

Viðhorf til grænu orkuvinnslunnar okkar með vatnsafli, jarðvarma og vindi er almennt jákvætt meðal ferðamanna.

95% töldu sig hafa orðið vör við orkuvinnslu með endurnýjanlegum orkugjöfum í ferðalagi sínu um Ísland.

73% töldu að orkuvinnsla með endurnýjanlegum orkugjöfum hafi haft jákvæð áhrif á heildarupplifun þeirra af íslenskri náttúru. Innan við 1% töldu hana neikvæða. 26% sögðu hana engin áhrif hafa haft.

54% segja að frekari orkuvinnsla muni auka líkurnar á að þau heimsæki Ísland aftur í framtíðinni. 45% aðspurðra sögðu orkuvinnsluna engin áhrif hafa á þá ákvörðun en aðeins um 1% töldu hana draga úr líkum á frekari heimsóknum.

Hlið við hlið

Heimsbyggðin er á tímamótum. Við verðum að bregðast við loftslagsvandanum og hætta að nota bensín og olíu. Við Íslendingar stöndum vel að vígi því við höfum alla burði til að skipta jarðefnaeldsneytinu út fyrir græna orku. En til þess að svo megi verða er óumflýjanlegt að reisa nýjar virkjanir hér á landi.

Græna orkan okkar er grundvöllur fyrir þeim lífsgæðum sem við búum við í dag og verður það áfram fyrir komandi kynslóðir. Vinnsla hennar skaðar ekki ímynd okkar í augum ferðamanna, þvert á móti. Það er gott að fá staðfestingu á því að tvær mikilvægar greinar, orkuvinnslan og ferðamennskan, geta áfram þrifist hér hlið við hlið.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×