Íslenskt fyrirtæki brautryðjandi í baráttunni við fjölónæmar bakteríur Heimir Már Pétursson skrifar 13. apríl 2023 19:32 Egill Másson framkvæmdastjóri Akthelia og Guðmundur Hrafn Guðmundsson prófessor í frumulíffræði við Háskóla íslands sem leiðir rannsóknir Akthelia lyfjaþróunarfyrirtækisins. Háskóli Íslands/Kristinn Ingvarsson Íslenska lyfjaþróunarfyrirtækið Akthelia er brautryðjandi í rannsóknum sem leitt gætu til byltingar í baráttunni við bakteríur sem í vaxandi mæli verða ónæmar fyrir sýklalyfjum. Evrópusambandið hefur styrkt rannsóknir fyrirtækisins um tæpan milljarð sem kom á elleftu stundu því horfur voru á að loka þyrfti rannsóknarstofu fyrirtækisins vegna fjárskorts.
Talið er að um fimm milljónir manna látist á hverju ári vegna aukins þols baktería gagnvart stórum hópi sýklalyfja. Óttast er að heimsfaraldur brjótist út ef bakteríurnar verða ónæmar fyrir nánast öllum sýklalyfjum. Guðmundur Hrafn Guðmundsson prófessor í frumulíffræði tók þátt í rannsóknum við Karolínska í Stokkhólmi sem voru fyrstar til að greina peptíða prótein í mannslíkamanum.Stöð 2/Ívar Guðmundur Hrafn Guðmundsson prófessor í frumulíffræði við Háskóla Íslands leiðir rannsóknir Akthelia sem eru langt komnar í að þróa efni eða lyf sem virkjar svo kallaða peptíða prótein í líkamanum sem gegna lykilhlutverki í ónæmiskerfi líkamans. Þegar bakteríurnar læra á sýklalyfin ná þær að bæla eðlileg viðbrögð peptíðanna sem annars myndu virkja varnir gegn þeim og valda þannig erfiðum sýkingum. „Með því að meðhöndla með þessum efnum gátum við snúið þessari bælingu við.“ Þessi aðferð ykkar, gæti hún komið í staðinn fyrir sýklalyf eða unnið með þeim? „Í ákveðnum tilfellum komið í staðinn en ég hugsa mest að vinna með þeim,“ segir Guðmundur Hrafn. Fyrstu bakteríudrepandi peptíðin fundust á rannsóknarstofum Karolínska spítalans í Stokkhólmi. Guðmundur Hrafn tók síðan þátt í rannsóknum þar þegar fyrstu peptíðin fundust í þekju mannslíkamans árið 1981. Peptíðin eru á húðinni og við augu og nef og annarri þekju líkamans. „Og við höfum séð það í ákveðnum dýralíkönum hvernig hægt er að nota okkar efni til að hindra að bakteríur fari yfir þekjuna og valdi sýkingum og dauða,“ segir Guðmundur Hrafn. Egill Másson framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir styrk Evrópusambandsins upp á sex milljónir evra, eða 900 milljónir íslenskra króna skipta miklu máli. Enda munaði minnstu að loka þyrfti rannsóknarstofunni vegna fjárskorts. Egill Másson framkvæmdastjóri Akthelía segir stefnt að því að fyrstu efni fyrirtækisins verði tilbúin til notkunar árið 2030. Stöð 2/Ívar „Það sem styrkurinn gerir fyrir Aktheliu er að hann leyfir okkur að skoða ný tækifæri til notkunar á okkar efnum. Núna getum við ekki bara skoðað samhengið við ekki bakteríusýkingar heldur líka veirusýkingar, sveppasýkingar og bólgusjúkdóma,“ segir Egill. Aktelía horfir nú sérstaklega til krabbameinssjúklinga sem verði fyrir mikilli ónæmisbælingu vegna lyfjameðferða. Og hér er ekki verið að tala um óræða framtíð því rannsóknir hefjast á mönnum árið 2025 og áætlað að efnin verði tilbúin árið 2030. „Niðurstöður í dýramódelum eru mjög góðar. Þar tekst okkur að koma algerlega í veg fyrir að bakteríur leki úr meltingarvegi út í blóðið og út í líffærin,“ segir Egill. Guðmundur Hrafn fer fyrir rannsókn Akthelia en hann og Eiríkur Steingrímsson prófessor við læknadeild stofnuðu fyrirtækið fyrir 20 árum í samstarfi við Háskóla Íslands. Að verkefninu, sem nefnist IN-ARMOR, koma níu háskólar og rannsóknastofnanir ásamt sjö fyrirtækjum í níu Evrópulöndum.
Heilbrigðismál Lyf Háskólar Evrópusambandið Tengdar fréttir Dauðsföllum af völdum sýklalyfjaónæmra baktería fjölgaði um 15 prósent Dauðsföllum af völdum sýklalyfjaónæmra baktería fjölgaði um 15 prósent í Bandaríkjunum árið 2020, á sama tíma og sýklalyfjum var ávísað til fjölda fólks vegna kórónuveirunnar og sýkinga hjá sjúklingum sem dvöldu langdvölum á heilbrigðisstofnunum. 13. júlí 2022 11:07 Ekki fjarlægur veruleiki að sár á fingri geti reynst dauðadómur Ef allt fer á versta veg gæti það aftur reynst dauðadómur að fá lungnabólgu eða sár á fingur. Þetta segir sérfræðingur hjá embætti landlæknis sem vísar þar í stöðu heilbrigðismála fyrir tíma áhrifaríkra sýklalyfja. 20. nóvember 2021 08:01 Íslendingar minnka sýklalyfjanotkun en enn hæstir meðal Norðurlanda Notkun sýklalyfja í íslenska heilbrigðiskerfinu hefur dregist saman um 30 prósent á fjórum árum ef tekið er mið af heildarsölu sýklalyfja hér á landi. Þrátt fyrir það notkun á slíkum lyfjum enn töluvert meiri hér en annars staðar á Norðurlöndunum. 30. september 2021 14:01 Landlæknir boðar aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi Heildarnotkun sýklalyfja á Íslandi minnkaði um 5 prósent milli áranna 2017 og 2018 en um 7 prósent hjá börnum yngri en fimm ára. 19. nóvember 2019 06:00 Ónæmar bakteríur geta valdið alvarlegum sýkingum Sýklalyfjaónæmi hefur aukist gífurlega á undanförnum árum og er orðin ein stærsta ógnin við heilbrigði sem mannkynið stendur frammi fyrir í dag. Florealis býður upp á jurtalyfið Lyngonia. Lyfið er eina viðurkennda meðferðin við endurteknum, vægum þvagfærasýkingum hjá konum, sem ekki er hefðbundið sýklalyf. 17. júlí 2019 12:00 Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Sjá meira
Dauðsföllum af völdum sýklalyfjaónæmra baktería fjölgaði um 15 prósent Dauðsföllum af völdum sýklalyfjaónæmra baktería fjölgaði um 15 prósent í Bandaríkjunum árið 2020, á sama tíma og sýklalyfjum var ávísað til fjölda fólks vegna kórónuveirunnar og sýkinga hjá sjúklingum sem dvöldu langdvölum á heilbrigðisstofnunum. 13. júlí 2022 11:07
Ekki fjarlægur veruleiki að sár á fingri geti reynst dauðadómur Ef allt fer á versta veg gæti það aftur reynst dauðadómur að fá lungnabólgu eða sár á fingur. Þetta segir sérfræðingur hjá embætti landlæknis sem vísar þar í stöðu heilbrigðismála fyrir tíma áhrifaríkra sýklalyfja. 20. nóvember 2021 08:01
Íslendingar minnka sýklalyfjanotkun en enn hæstir meðal Norðurlanda Notkun sýklalyfja í íslenska heilbrigðiskerfinu hefur dregist saman um 30 prósent á fjórum árum ef tekið er mið af heildarsölu sýklalyfja hér á landi. Þrátt fyrir það notkun á slíkum lyfjum enn töluvert meiri hér en annars staðar á Norðurlöndunum. 30. september 2021 14:01
Landlæknir boðar aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi Heildarnotkun sýklalyfja á Íslandi minnkaði um 5 prósent milli áranna 2017 og 2018 en um 7 prósent hjá börnum yngri en fimm ára. 19. nóvember 2019 06:00
Ónæmar bakteríur geta valdið alvarlegum sýkingum Sýklalyfjaónæmi hefur aukist gífurlega á undanförnum árum og er orðin ein stærsta ógnin við heilbrigði sem mannkynið stendur frammi fyrir í dag. Florealis býður upp á jurtalyfið Lyngonia. Lyfið er eina viðurkennda meðferðin við endurteknum, vægum þvagfærasýkingum hjá konum, sem ekki er hefðbundið sýklalyf. 17. júlí 2019 12:00