Skoðun

Skjálfta­hrina er hafin í Val­höll

Tómas Ellert Tómasson skrifar

Nú skelfur Valhöll. Valhöll skelfur vegna þess að kominn er fram efnilegur leiðtogi í öðrum stjórnmálaflokki sem ógnar því valdajafnvægi sem Sjálfstæðisflokkurinn vill viðhalda. Valdajafnvægi þar sem einn stjórnmálaflokkur hefur töglin og hagldirnar. Og nú verður allt reynt til að koma höggi á þann stjórnmálamann og hans flokk sem ógnar þessu valdajafnvægi. Skrímsladeildin ryðst af stað, eira engum sem fyrir verður, heimta afsagnir kjörinna fulltrúa og ræða digurbarkalega sín á milli um vanda sveitarfélaga í sínum eigin viðtalsþáttum. Vanda sem þeir margir hverjir sköpuðu sjálfir, reyna að fela og viðurkenna ekki.

Nú síðast var settur upp leikþáttur í Svf. Árborg þar sem sleginn var falskur tónn sem „óvart“ barst inn í Borgarstjórn Reykjavíkur. Í Árborg var blásið til íbúafundar um fjármál sveitarfélagsins. Staðan máluð svört. Skuldahlutfallið sagt vera 160% vegna rekstrarársins 2022, yfir 150% skuldaviðmiði. Sjálfstæðisflokkurinn var síðast við völd í Árborg árin 2010 til 2018. Þá var skuldahlutfallið í 5 ár af 8 yfir 150% skuldaviðmiði, var lægst 134% og hæst 205%. Aldrei var blásið til íbúafunda um fjármál sveitarfélagsins vegna þessa. Og þess ber svo að geta að þær fjárfestingar sem farið var í á sl. kjörtímabili (2018-2022) af meirihluta Á, B, M og S-lista í Árborg voru að mestu margsvikin kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins allt frá árinu 2006 s.s. bygging fjölnota íþróttahúss.

Mynd 1- Skuldahlutfall Svf. Árborgar 2010-2021Samband íslenskra sveitarfélaga

Í Reykjavík kalla svo borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks eftir því að meirihluti borgarstjórnar bregðist við með jafn „heiðarlegum“ og ábyrgum hætti og sveitarstjórn Árborgar og haldi íbúafund um fjármál Reykjavíkurborgar. Fyrrum fjandmennirnir í skrímsladeildinni eru svo einnig farnir að vinna aftur saman og hrópa í kappi hver við annan allskyns ónefnum að öðrum

borgarfulltrúum. Það þykir mér vera saga til næsta bæjar og bera vott um að verulega hrikti í stoðum Valhallar vegna efnilega leiðtogans sem nú er reynt að knésetja með öllum ráðum.

Við höfum séð svipuð vinnubrögð áður hjá skrímsladeildinni þegar herja á og taka á niður leiðtoga annarra stjórnmálaflokka. Hæstu hæðum náði skrímsladeildin árið 2016 svo eftir var tekið á heimsvísu. Því miður fyrir íslenska þjóð var í það skiptið tekinn niður stjórnmálamaður sem stóð með landi og þjóð gegn erlendum og innlendum hrægömmum. Sá stóð sem betur fer upp aftur.

Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Svf. Árborg.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×