Skoðun

Fót­spor mann­virkja

Ragnar Ómarsson skrifar

Á árinu 2022 var gefinn út vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð á Íslandi og markar útgáfan tímamót í sjálfbærniþróun mannvirkja. Í fyrsta sinn hafa Íslensk stjórnvöld og aðilar mannvirkjageirans fengið í hendurnar yfirlit yfir umhverfisáhrif mannvirkja á Íslandi sem gerir kleift að setja viðmið og markmið í átt að aukinni sjálfbærni. Í vegvísinum er einnig að finna 74 aðgerðir sem eiga að draga úr loftslagsáhrifum mannvirkja. Í dag er mannvirkjagerð ábyrg fyrir 37% af allri losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum og 50% af allri hráefnanotkun. Mannvirkjagerð er langtímaframkvæmd og áhrifa hennar á umhverfið gætir áratugum og öldum saman. Aðgerðir til að sporna við neikvæðum umhverfisáhrifum mannvirkjageirans þurfa að taka mið af þessu. Um leið og nauðsynlegt er að byggja ný mannvirki úr endurnýtanlegum hráefnum sem hafa lágmarksáhrif á umhverfið, þarf að hlúa vel að þeim mannvirkjum sem nú þegar hafa verið reist til þess að koma í veg fyrir hráefnasóun og til þess að draga úr orkunotkun. Hráefnavinnsla úr náttúruauðlindum (kol, olíuvinnsla, málmvinnsla ofl.) á sér endanleg takmörk. Ágangur í þessar auðlindir ógnar nú lífi og heilsu mannkynsins og skammt er þess að bíða að vinnsla og verslun með kolefnislosandi orkugjafa verði talinn heilsuógn líkt og framleiðsla á spilli- og eiturefnum og meðferð þeirra verði takmörkum sett líkt og gert er með heilsuspillandi neysluvörur eins og tóbak og eiturlyf.

Þegar til kastanna kemur er líf, heilsa og vellíðan fólks mikilvægara en efnahagur þjóða. Þetta hefur mannkynið staðfest í viðbrögðum sínum við heimsfaraldrinum sem enn geisar í flestum löndum heims. Stjórnvöld þjóðríkja gripu inn í daglegt líf almennings og settu hegðun þeirra ákveðnar skorður til þess að lágmarka skaðann sem faraldrinum fylgir, á meðan að vísindamenn reyndu að finna varanlegri lausn í formi bóluefnis. Þegar faraldurinn stóð sem hæst, varð merkjanlegur samdráttur í hráefnavinnslu, framleiðslu og viðskiptum sem leiddi til þess að mengun og útblástur gróðurhúsalofttegunda stóð í stað, en mengun og útblástur gróðurhúsalofttegunda er mesti ógnvaldur við líf, heilsu og vellíðan mannkynsins í nánustu framtíð. Fyrir þjóðir heims er lífsnauðsynlegt að ná tökum á þessum vanda því ef ekki verður spornað við þróuninni, mun hún bitna á lífi og heilsu milljóna manna og hafa varanleg áhrif á vellíðan alls mannkyns. Von okkar allra er sú að mannkyninu beri sú gæfa að grípa til þeirra aðgerða sem komið geta í veg fyrir loftslagsvandann, jafnvel þótt slíkar aðgerðir hefðu í för með sér samdrátt í efnahag og lífskjörum núverandi kynslóða, ef slíkt yrði til þess að vernda möguleika komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum og stuðla að því að þjóðin búi við heilbrigð og góð lífsskilyrði.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×