„Hvernig í ósköpunum lét Valur hana fara frá sér?“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. apríl 2023 08:30 Katla Tryggvadóttir gaf stórkostlega stoðsendingu í sigri Þróttar á FH. vísir/hulda margrét Katla Tryggvadóttir var valin besti leikmaður 1. umferðar Bestu deildar kvenna af Bestu mörkunum. Hún var að sjálfsögðu til umræðu í þættinum og sérfræðingar hans veltu fyrir sér hvernig Valur gat ekki notað hana.
Katla skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Þróttur sigraði FH, 4-1, í 1. umferð Bestu deildarinnar á þriðjudaginn. Katla er uppalin hjá Val en hefur spilað með Þrótti undanfarin tvö tímabil. „Ég hugsa stundum hvernig í ósköpunum lét Valur hana fara frá sér?“ sagði Helena Ólafsdóttir í Bestu mörkunum. „Það er ótrúlegt,“ sagði Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir. „Hún er svo ótrúlega skapandi. En Valur býr að þeim lúxus að geta sótt sér alla þá leikmenn sem þeir vilja. Hvað voru þeir búnir að sækja marga þegar hún átti að fá tækifærið?“ Klippa: Bestu mörkin - Umræða um Kötlu Harpa Þorsteinsdóttir velti fyrir sér hvort félagaskipti Kötlu til Þróttar hefðu ekki verið best fyrir alla hlutaðeigandi. „Sjáðu hvað þetta var gott skref fyrir hana. Mögulega átti þetta samtal sér stað. Valur var aldrei að fara að spila þessum leikmanni jafn mikið og Þróttur og Þróttur á þeim stað í deildinni sem þeir eru, ég segi bara frábær ákvörðun fyrir hana,“ sagði Harpa. „Hundrað prósent og þegar það er ekki verið að nýta svona efnilega leikmenn að senda þá á lán eða skipta. En það er kannski spurning hvort svona stórlið gætu nýtt þessa efnilegu leikmenn betur.“ Umræðuna um Kötlu úr Bestu mörkunum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Bestu mörkin Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira