Skoðun

Látið Kvenna­skólann í friði

Kolbrún S. Ingólfsdóttir skrifar

Menntamálayfirvöld íhuga nú að sameina Kvennaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Sund. Enn og aftur er reynt að afmá konur og verk þeirra af spjöldum sögunnar. Á næsta ári verður Kvennaskólinn 150 ára gamall og sýnir hvorki ellimörk né veitir afslátt á námi.

Kvennaskólinn í Reykjavík var stofnaður af Þóru Melsteð (1823-1919) og eiginmanni hennar Páli þann 1. október 1874 og var fyrsti íslenski kvennaskólinn. Kvennaskólinn var gagnfræðaskóli og útskrifuðust nemendur þaðan sem gagnfræðingar eftir 4 ára nám. Þá var MR eini skólinn sem útskrifaði stúdenta til háskólanáms. Nemendur þar voru eingöngu piltar þar sem skólinn var lokaður stúlkum til ársins 1904. Kvennaskólinn varð framhaldsskóli árið 1979 og fyrstu stúdentarnir útskrifuðust árið 1982. Forstöðukonur og síðar skólameistarar Kvennaskólans hafa alla tíð haldið hinni háleitu stefnu og markmiðum sem Þóra Melsteð setti skóla sínum. Kvennaskólastúlkur voru og eru frambærilegir fulltrúar nýrrar kynslóðar hverju sinni og er Peysufatadagurinn þeirra merkisdagur enn þann dag í dag. Það sama gildir auðvitað um alla þá góðu pilta sem þar hafa stundað nám.

Kvennaskólinn var fyrst til húsa á heimili Melsteð-hjónanna við Thorvaldsenstræti og byggðu þau nýtt hús við Austurvöll árið 1878. Þar var skólinn til ársins 1909 þegar hann flutti í eigið húsnæði við Fríkirkjuveg 9 og er þar enn. Hið gamla heimili Þóru og Páls var síðan sett inn í hótel við Austurvöll og er því horfið þannig séð.

Það er ekki verðugt verkefni hjá yfirvöldum að umbreyta eina kvennaskóla landsins með þessum hætti sem fyrirhugað er. Þvílík afmælisgjöf á nær 150 ára afmæli skólans. Konur þurfa því að sameinast um hinn merka og sögulega arf formæðra okkar í námi barna og ungmenna og hindra þennan vanhugsaða gerning.

Þessi fyrirhugaða sameining hefur ekkert með eflingu verknáms að gera. Því til viðbótar skiptir fjölbreytileikinn máli á framhaldsskólastigi en nemendahópurinn sem sækir þessa tvo skóla sem fyrirhugað er að sameina, hefur verið ólíkur. Kvennaskólinn hefur ætíð verið í fararbroddi í kennslu og nýjungum og telst meðal bestu og vinsælustu framhaldsskóla landsins. Reksturinn er fjárhagslega í góðu lagi eins og annað sem konur stjórna.

Látið þennan góða skóla í friði.

Höfundur er lífeindafræðingur og sagnfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×