Skoðun

Innlegg í sameiningarumræðu Kvennaskólans og Menntaskólans við Sund

Oliver Einar Nordquist og Embla María Möller Atladóttir skrifa

Tillaga mennta- og barnamálaráðuneytis um sameiningu margra mennta- og framhaldsskóla kom flestum, ef ekki öllum, eins og þruma úr heiðskýru lofti. Þessar fregnir hafa ollið mikilli óreiðu og óvissu innan skólasamfélagsins. Við í nemendafélaginu Keðjunni og Skólafélagi Menntaskólans í Sund fengum að vita af þessu á sama hátt og allir aðrir, í gegnum forsíðufréttir helstu fréttamiðla landsins. Engin umræða tekin fyrirfram við nemendur. Þau vinnubrögð finnst okkur vera vafasöm en það er eins og það er.

Kvennaskólinn í Reykjavík hefur tekið þessari tillögu misvel. Ákveðin hræðsla hefur verið í andrúmslofti skólans þar sem nemendur vilja ekki missa “Kvennaskólaandann” sem hefur verið í áratugi og skiptir nemendur miklu máli. Kvenskælingar eru hræddir að missa allar þær hefðir og allt félagslífið sem er þeim svo kært. Kvennaskólinn á sér ríka sögu og hefur ríkt menningargildi fyrir kvennabaráttuna sem átti og á sér stað hér á landi. Það er hrein óvirðing að taka þessa stofnun og stroka hana út af blaðinu, þar sem þetta er ekki einungis sameining heldur eyðing á skólunum báðum. En burtséð frá því ríka menningargildi sem Kvennaskólinn hefur þá eru kennarar, nemendur og starfsfólk skólans ósátt og vilja ekki að þetta gangi í gegn. Keðjan fordæmir þessa ákvörðun eins og staðan er núna.

Menntaskólanum við Sund finnst þessi ákvörðun einfaldlega út í hött. MS er einn eftirsóttasti skóli landsins, var einmitt einn sá eftirsóttasti í fyrra. Skólinn heldur einungis áfram að stækka og fylgir félagslífið því. MS er með eitt mikilfengasta félagslíf af öllum framhaldsskólum landsins, hefðir skólans einstakar og stór partur af því að vera nemandi í MS. Nýnemar sækjast eftir MS ekki einungis vegna félagslífsins heldur einnig vegna námsins. Námið er einstakt og sjaldgæft. Kerfið í MS er erfitt að finna annars staðar á landinu og er þar af leiðandi eftirsóknarvert. Það seinasta sem Skólafélagið í MS vill er að þetta fari í gegn.

Svona stóra ákvörðun má ekki taka án þess að vera í samráði við þá sem koma að skólunum. Það hljóta að vera aðrar leiðir sem hægt sé að fara sem bitna ekki á menningargildi, félagslífi eða starfsemi skólanna fyrir sig. Keðjan og Skólafélag Menntaskólans við Sund telja þessi vinnubrögð stýrihópsins ekki til fyrirmyndar og hvetja stýrihópinn til að gera betur.

Við hvetjum alla til að mæta á mótmælin næsta föstudag, þann 19.maí, þar sem mótmæli fara fram gegn tillögu mennta- og barnamálaráðuneytisins um sameiningu á Kvennaskólanum í Reykjavík og Menntaskólans við Sund. Mótmælin munu vera klukkan 13:00, á Sölvhólsgötu 4, fyrir utan mennta- og barnamálaráðuneytið.

Höfundar eru formenn Keðjunnar og SMS




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×