Skoðun

Konur á kortið á Austur­landi

Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Það liggur eitthvað í loftinu þessa dagana. Það er bjart og sumarið er heldur betur farið að minna á sig. Allt er að vakna til lífsins, söngur lóunnar ómar, börnin eru búin að leggja kuldagöllunum og fullorðna fólkið er bæði að undirbúa sumartörnina í vinnunni sem og sumarfríið langþráða eftir þungan vetur.

Á þessum tíma er kjörið að taka þátt í einhverju nýju, einhverju spennandi, einhverju valdeflandi.

Þann 25. maí klukkan klukkan 17.00 ætla konur á Austurlandi að hittast í Vök Baths og stofna FKA Austurland.

Ég hvet allar konur til að mæta og taka þátt í þessum merkilega viðburði.

Nú þegar eru til landshlutadeildir innan FKA og það hefur sýnt sig og sannað að deildirnar verða til þess að lyfta konum upp, stykrja samstöðu og sambönd þeirra á milli sem og vekja athygli á þeim fjölbrettu og mikilvægu störfum sem þær sinna.

Á Austurlandi eru konur í fjölmörgum áhugaverðum störfum að gera stórmerkilega hluti. Með aðild að FKA getum við nýtt okkur hvor aðra, lyft hvor annarri upp, lært hver af annarri og komið saman og haft gaman!

Því breiðleiddari og fjölbreittari hópur kvenna því betra! Hvort sem þú ert í rekstri lítil fyrtækis, starfir innan stjóriðju, sért í obinbera geiranum, starfir innan menntastofnunar, rekur bú eða eitthvað allt annað þá áttu erindi á stofnfundinn.

FKA eru félagasamtök fyrir stjórnendur og leiðtoga í íslensku atvinnulífi og eru hugsuð sem lyftistöng fyrir konur til af efla sig og styrkja tengslanet sitt. Konur sem eru partur af FKA fá aukin sýnileika á það sem þær eru að gera. Þær geta einnig sótt sér ýmiskonar fræðslu á vegum félagssamtakanna. Innan samtakanna eru einnig fjölbreyttar deildir og nefndir þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Með aðild að samtökunum skapast einnig tækifæri til þess að haf áhrif á samfélagsumræðuna. Með stuðningi hverrar annarrar og FKA getum við látið heyra enn betur í okkur og verðum við og okkar raddir sýnilegri.

Sjálf er ég búin að vera stutt innan FKA en finn strax að á móti mér tók svo mikil samstaða, kærleikur og blússandi „pepp“. Konur ERU konum bestar!

Ég hlakka til að taka þátt í að skrifa okkur, konur á Austurlandi, inn í söguna á fimmtudaginn og ég vona að þú látir þig ekki vanta!

Ég hvet auðvitað þær sem ekki hafa skráð sig í FKA nú þegar til þess að gera það fyrir fundinn en þær sem ekki hafa gert það eru velkomnar líka.

Skráning fer fram á www.fka.is, þá má einnig finna frekari upplýsingar um viðburðinn á Facebook. Sértu svo óheppin að komast ekki á staðinn þá verður einnig hægt að fylgjast með fundinum í gegnum streymi.

Höfundur er stofnmeðlimur FKA Austurland.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×