Skoðun

Rúm­lega 150 milljarða halli hjá ríkis­sjóði og úr­vinda sjálf­boða­liðar

Bergvin Oddsson skrifar

Þegar horft er á ríkisreikninginn er hallinn vel yfir 150 milljarðar á árinu 2023. Þrátt fyrir glimrandi hagvöxt sennilegast munum við toppa bæði Kína og Indland því þar er gert ráð fyrir tæplega 6% hagvexti. Afhverju er ég að skrifa þessa grein? Það er vegna þess að ár eftir ár er halli á ríkissjóði þrátt fyrir að t.d Landspítalinn nái aldrei endum saman. Vegakerfið er í molum, löggæslan skortir aukið fé ár eftir ár. Háskólarnir okkar dragast aftur úr og eins og Háskólaráðherra sagði fyrir páska að við værum að skrapa botninn á norðurlöndunum. Þið vitið það vel að ég gæti haldið hér áfram upptalningunni allt það sem er ekki í ólestri heldur í virkilega slæmum málum í mörgum málaflokkum. Um árabil hafa sjálfboðaliðar góðgerðarsamtaka hér á landi Lions, Oddfelow, Kiwanis, Rótarí, kvenfélögin hringinn í kringum landið. Ásamt fermingarbörnum ár eftir ár, skógræktin, björgvunarsveitirnar sem fá sáralítið greitt fyrir sína þjónustu, já ég segi þjónustu en ekki aðstoð. Sjálfboðaliðar safna peningum til að kaupa ný tæki sem heilbriðisstofnanir vítt og breitt um landið þiggja á hverju ári gjafir því stofnanirnar hafa ekki fjármagn til að endurnýja tækin sín sjálf. Sjálfboðaliðar eru úrvinda eftir þrotlausa vinnu hvort sem er að safna peningum, stuðla að landgræðslu eða skógrækt, allt í þágu ríkisins. Allt þetta fólk ætti skilið að fá smá skattaafslátt eða aukin persónuafslátt sem smá þakklætisvott fyrir óeigingjarnt starf í þágu íslenska ríkisins...

Setjum á tólf mánaða starfsmannabann hjá hinu opinbera

Launakostnaður hjá ríkinu hefur aukist á hverju einasta ári alla þessa öld, báknið einfaldlega stækkar og stækkar. Á mennta og heilbrigðissviðinu tel ég ekki vera möguleiki að fækka starfsfólki hjá ríkinu en á öllum öðrum stöðum er vel hægt að setja á tólf mánaða starfsmannabann, sem þýðir einfaldlega að þegar opinber starfsmaður lætur af störfum sé ekki ráðið í viðkomandi stöðu. Starfsmannavelta hjá hinu opinbera er aðeins 7% sem er töluvert minna en í einkageiranum og í þriðja geiranum. Af hverju skyldi það vera?? Kannski vegna þess að það eru svo margar þægilegar innivinnur í boði hjá ríkinu. Vissulega starfa ekki allir ríkisstarfsmenn innandyra. Nú verða stjórnvöld að líta í eigin barm taka sér tak og vinna í alvöru að því að draga úr ríkishallanum. Með því að setja á starfsmannabann í tólf mánuði myndi ríkissjóður spara marga milljarða á ári og ég er viss um að þjónustan myndi ekki skerðast sem nokkru nemur þrátt fyrir slíkt átak.

Fleiri tillögur

Hefði ekki verið gáfulegra að halda áfram gjaldtöku í Hvalfjarðagöng og fá tekjur í kassann?afhverju má ekki innheimta gjöld af erlendum ferðamönnum. Hvar er gistináttaskatturinn og náttúrupassinn? Sameinum stofnanir Hagstofu og Þjóðskrá. Fiskistofa og Hafró. Svo ekki sé minnst á öll söfnin.

Höfundur er Bergvin Oddsson, stjórnmálafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×