Skoðun

Frekari vaxta­hækkanir ó­þarfar

Finnbjörn A. Hermannsson skrifar

Það bárust jákvæð tíðindi í lok júlí þegar verðbólga hjaðnaði nokkuð milli mánaða og mældist 7,6%. Ljóst er að verðbólga er enn óásættanlega mikil en tölurnar gefa þó væntingar um að toppnum sé náð, verðbólga hafi náð hámarki og stýrivextir einnig. Sú þróun myndi styðja við gerð langtímasamnings á vinnumarkaði.

Peningastefnunefnd mun á miðvikudag tilkynna ákvörðun sína um breytingu stýrivaxta. Bankarnir og fjármálakerfið munu án vafa vilja sjá enn aðra vaxtahækkunina. Hinsvegar er erfitt að finna rök fyrir áframhaldandi hækkun stýrivaxta. Undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað og sjá má merki um kólnun í hagkerfinu. Seðlabankinn hefur þó gefið til kynna að fjölgun ferðamanna umfram grunnspá bankans kunni að leiða til frekari vaxtahækkana.

Eðlilegt að halda stýrivöxtum óbreyttum

Stýrivextir voru hækkaðir um 1,25 prósentur í maí og eru í dag 8,75%. Peningastefnunefnd rökstuddi hækkunina með vísan í 9,9% verðbólgumælingu, háa undirliggjandi verðbólgu og mikla þenslu í hagkerfinu. Ljóst er að tíma tekur fyrir stýrivexti að hafa áhrif á verðlag og eftirspurn. Áhrif undangenginna vaxtahækkana bankans eru því ekki að fullu komin fram. Skýr merki eru um að nú dragi úr þenslu í hagkerfinu. Þetta sést meðal annars í minni undirliggjandi verðbólgu, samdrætti í kortaveltu heimila og hægagangi á húsnæðismarkaði. Þó hefur þróun í ferðaþjónustu verið í aðra átt, þar hefur fjölgun ferðamanna verið umfram væntingar flestra spáaðila.

Hætta er á því að verði gengið of langt í hækkun vaxta muni það ekki einungis þrengja enn frekar að heimilum heldur einnig skapa vanda á framboðshlið, þ.e. verktakar muni draga úr nýbyggingum húsnæðis. Þar með yrði tímabundið dregið úr þenslu en vandanum og verðbólgunni frestað þar til síðar. Nú þegar er hætta á því að metnaðarfull áform stjórnvalda að stuðla að byggingu 35 þúsund íbúða á næstu 10 árum gangi ekki eftir.

Skapa þarf forsendur fyrir langtímasamningum

Þeir samningar sem undirritaðir voru á almennum vinnumarkaði í desember miðuðu að því að verja kaupmátt launafólks á verðbólgutímum, auka fyrirsjáanleika og leggja þannig grunn að gerð langtímasamnings. Samningarnir tóku mið af sterkri afkomu fyrirtækja sem búið hafa við methagnað undanfarin ár. Að mörgu leyti hefur markmið samningana gengið eftir, tekist hefur að verja kaupmátt og verðbólga fer nú lækkandi.

Nú er verkefnið að skapa forsendur fyrir gerð langtímasamnings. Þar leika stjórnvöld lykilhlutverk með aðgerðum sem stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði og bættum lífskjörum launafólks.

Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×