Skoðun

Sameiginleg ást okkar DiCaprio

Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Það hefur verið stefna íslenskra stjórnvalda um langa hríð að nýta beri sjávarauðlindir við Ísland – sett hefur verið skýr löggjöf sem tryggir að veiðarnar séu sjálfbærar, byggðar á vísindalegum grunni, lúti eftirliti og séu í samræmi við alþjóðalög. Íslendingar hafa lengi dregið fram lífið með því að nýta þessar auðlindir. Atvinnuréttindi við veiðar eru aukinheldur tryggð í stjórnarskrá. Þegar stjórnvöld hrófla við þessum stjórnarskrárvörðu réttindum þarf mikið að koma til. Meðalhófs þarf að gæta svo fótunum sé ekki kippt undan fólki og velsæld þjóðar í skiptum fyrir pólitíska skammtímahagsmuni. Hvalveiðar lúta meðal annars þessum skýru og sanngjörnu lögmálum.

Nú hafa erlendar stórstjörnur stigið inn á sviðið í umræðu umliðinna vikna um þessar veiðar Íslendinga. Og það á að refsa Íslendingum. Okkur er sagt að við munum hafa verra af, ef við förum ekki að kröfum þeirra um að hætta hvalveiðum.

Úti í hinum stóra heimi hefur nokkuð verið rætt og ritað um þátttöku þeirra frægu í baráttu fyrir hinum ýmsu málum, líkt og jafnréttis- og loftslagsmálum. Orð þeirra hafa vægi vegna þess mikla fylgis og velvildar sem þau hafa hjá almenningi. En baráttan hefur líka leitt aðrar og óheppilegri athafnir þeirra í ljós. Af handahófi má meðal annars nefna Leonadro DiCaprio, sem nú hótar Íslendingum vegna hvalveiða. Hann hefur í gegnum tíðina lagt mikilvæg lóð á vogarskálar í því að vekja fólk til umhugsunar um loftslagsbreytingar. Það er að sjálfsögðu vel. Mikilvægast af öllu hlýtur þó að vera að hugur fylgi máli þess sem berst svo ötullega fyrir tilteknum málstað. Þar hefur nefnilega misbrestur orðið á í tilviki DiCaprio. Þannig hefur hann ítrekað verið gagnrýndur fyrir mikla notkun á einkaflugvélum, auk þess að flatmaga mánuðum saman á lúxusnekkju sinni á siglingum um heimsins höf, allt með óhóflegri og ónauðsynlegri notkun á jarðefnaeldsneyti. Þetta hefur í erlendum miðlum verið kallað hræsni.

En loftslagsmálin hafa ekki verið einu baráttumál DiCaprio. Hann hefur einnig barist ötullega fyrir virku lýðræði, ekki bara í heimalandi sínu Bandaríkjunum, heldur einnig nýverið í Brasilíu. Þar hefur hann hvatt fylgjendur sína til að nýta kosningarétt sinn og hafa þannig áhrif á framtíð sína. Það er virðingarvert að brenna fyrir grundvallarréttindum fólks. Ég vona innilega að DiCaprio haldi þeirri baráttu áfram að standa vörð um mannréttindi, lýðræði og grundvallarreglur réttarríkis, ekki bara í heimalandi sínu heldur um allan heim – og það þrátt fyrir að hafa um stundarsakir gleymt þeirri baráttu gagnvart Íslendingum.

Nú hef ég mikið dálæti á hæfileikum margra þeirra leikara sem hafa í hótunum við Íslendinga. En þetta leikrit hugnast mér ekki. Þrátt fyrir dálæti heimsins á þessu fólki, þá eru völd þeirra blessunarlega ekki þess háttar að þau víki til hliðar meginreglum lýðræðis og réttarríkis.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×