Skoðun

Eitt sveitar­fé­lag á Suður­nesjum skilið eftir í heil­brigðis­málum

Anton Kristinn Guðmundsson skrifar

Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag á suðurnesjum og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár er íbúafjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið alls 4.011 nú í byrjun þessarar viku. Þegar Suðurnesjabær varð til við sameiningu Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs fyrir 5 árum var íbúafjöldinn um 3.400. Íbúum hefur því fjölgað um 600 manns á þessum 5 árum, eða um 17,5%.

Uppbygging í heilbrigðismálum á íslandi hefur verið mikil á undanförum árum og hefur núverandi heilbrigðisráðherra verið vinnusamur þá daga sem hann hefur setið í embætti og lagt miklu vinnu í þau mikilvægu verkefni sem hann hefur verið að leysa hverju sinni, en með einhverju móti viðrist Suðurnesjabær verða undir í þeim efnum.

Sú staðreynd blasir við að sveitarfélagið Suðurnesjabær er stærsta sveitarfélagið á íslandi sem hefur ekki neina heilsugæslu né hjúkrunarheimili og þurfa því íbúar að leita til annarra sveitarfélaga eftir heilbrigðisþjónustu. Ef mið er tekið af stærð er Suðurnesjabær eina sveitarfélagið á Íslandi sem stendur í þeim sporum.

Sveitarfélagið er með stórt og mikið verkefni í fanginu sem snýr að vegalausum börnum þar sem flugstöð Leifs Eiríkssonar er staðsett í Suðurnesjabæ og fellur því þessi málaflokkur sjálfkrafa á barnavernd sveitarfélagsins með tilheyrandi kostnaði sem það hefur í för með sér. Einnig eru uppi áform Vinnumálastofnunar um að koma með í Suðurnesjabæ umsækjendur um alþjóðlega vernd sem telja 120 manns, þvert á samþykki sveitarstjórnar.

Bæjaryfirvöld og íbúar í Suðurnesjabæ hafa lengi kallað eftir því að Heilbrigðis þjónusta verði endurvakin í sveitarfélaginu líkt og hún var hér á árum áður til að tryggja grunnþjónustu í vaxandi samfélagi. Sveitarfélagið hefur nú þegar boðið fram hentugt húsnæði undir starfsemina sem bæði er vel staðsett, með nægum bílastæðum og fyrsta flokks aðgengi á jarðhæð.

Um er að ræða gríðarlega stórt réttlætismál fyrir íbúa Suðurnesjabæjar, að heilbrigðisþjónusta verði í boði í sveitarfélaginu líkt og í öllum öðrum sveitarfélögum á Íslandi af þessari stærð.

Bæjaryfirvöld í Suðurnesjabæ eru öll boðin og búin að hefja formlegar viðræður strax við heil-brigðisráðuneytið og forsvarsmenn HSS við fyrsta tækifæri svo að hægt sé að undirbúa húsnæðið sem Suðurnesjabær hefur upp á að bjóða undir slíka starfsemi. Ég skora á alla þingmenn í kjördæminu hvar í flokki sem þeir standa og ekki síst á heilbrigðisráðherra að beita sér að hörku svo að þetta réttlætismál fyrir íbúa suðurnesjabæjar nái fram að ganga sem allra fyrst, því ljóst þykir að málefnið er brýnt og þolir enga bið.

Höfundur er oddviti Framsóknar í Suðurnesjabæ.


Tengdar fréttir

Engin heil­brigðis­þjónusta í fjögur þúsund manna bæjar­fé­lagi

Bæjaryfirvöld í Suðurnesjabæ vinna nú hörðu höndum að því að fá heilbrigðisþjónustu frá ríkinu í sveitarfélagið en staðreyndin er sú að það er enga heilbrigðisþjónustu að hafa í Suðurnesjabæ í dag þrátt fyrir að þar búi um fjögur þúsund manns.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×