Skoðun

Óþekka fólkið sem færði okkur þekkingu

Jón Þór Ólafsson skrifar

Sagan af eld-þjófinum Prómeþeif er samskonar saga og af öðrum ljósbera, snáknum (Lúsifer) í aldingarðinum Eden. Prómeþeifur óhlýðnaðist Ólympus guðunum (Seif þrumuguð og Co.) og gaf mönnunum eld sem gaf þeim þekkingu. Snákurinn fékk Evu sem fékk Adam til að óhlýðnast Jave (guð Ísreala, sem b.t.w. var líka þrumuguð) og borða aldin (var aldrei sagt epli) og öðlast þannig þekkingu.

Vísindin hafa svo sýnt okkur grófa tímalínu af því hvernig við komum sem tegund niður úr trjánum (úr paradís aldin trjánna fyrir um 4-2 milljón ár síðan) og yfir þúsundir kynslóða fóru þeir áhættusæknari (líklega mest unglingarnir sem verða líffræðilega áhættusæknari og óhlýðnari) að sofa á jörðinni, sem er hættulegra vegna rándýra, en varð svo öruggara þegar við lærðum að nota eld (fyrir um 2-1 milljón árum). Og þau sem hættu sér nálægt eldinum voru aftur þau áhættusæknari, þ.e. "unga fólkið sem er hætt að hlýða foreldrum sínum" eins og reiður egypskur prestur komst að orði fyrir meira en 5000 árum.

Svefn á jörðinni við varðeldinn gerði okkur svo kleift að lengja REM hluta svefntímans sem margfaldar þekkingu (en þetta "draumsvefn" tímabil lamar líkaman og því hættulegra uppi í tré þar sem fall er ekki fararheill). En við REM svefn tengir heilinn nýjar minningar við þær eldri sem er nákvæmlega aukin þekking. Meiri REM svefn => meiri gagnlegar tengingar upplýsinga => meiri þekking. Minni heildarsvefn bættum við svo upp með blundi, þegar rándýrin voru sofandi undir tré, í eftirmiðdags hitunum, sem rannsóknir sýna að auki svo bæði skamm- og langtímaminni.

Það að yfirgefa paradís aldin trjánna og sofa við varðeldinn var grundvöllur fyrir þróun þekkingargetu okkar tegundar, sem kom á sjónarsviðið í núverandi mynd fyrir um 300 þúsund árum sem, hin Vitiborni Maður (Homo Sapiens Sapiens). Með fyrirvara um að allar þessar tengingar þurfa ekki að þýða orsakatengsl.

Höfundur er sálfræðinemi og fyrrverandi óþekktarormur á Alþingi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×