Skoðun

Keisaraskurður án deyfingar

Jódís Skúladóttir skrifar

Þær hryllilegu árásir sem við horfum upp á dag eftir dag fylla okkur viðbjóði og vanmætti. Saklausu blóði er úthellt í sjálfhverfum byssuleik valdamikilla karla sem enga ábyrgð taka á gjörðum sínum og skella skollaeyrum við ákalli alþjóðasamfélagsins um vopnahlé. Einn af hörmulegum fylgifiskum stríðsátaka um allan heim er verri hagur kvenna og barna sem oft var ekki beysinn fyrir.

Á Gaza eru 50.000 þungaðar konur, þar af 5600 sem eiga að fæða börnin sín innan mánaðar. Þær eru vannærðar, hungraðar og veikar. Einhverjar þeirra munu þurfa að fæða með keisaraskurði – án deyfingar því það eru ekki til deyfilyf á Gaza.

Í Úkraínu hefur fátækt og skortur sem bitnar mest á konum margfaldast síðan Rússar gerðu innrás, kynbundið ofbeldi og kynferðisofbeldi stóraukist og vændi og mansal einnig.

Í Mjanmar eru tugþúsundir kvenna á flótta undan stríðsátökum, nauðgunum er beitt kerfisbundið sem stríðsvopni og kynlífsmansal fer fram yfir landamærin til Kína.

Stríðsátök hafa tilhneigingu til að auka tíðni kynferðisofbeldis og konur og stúlkur eru þar fyrst og fremst fórnarlömb. Nauðganir, kynsjúkdómar, þar með talið alnæmi, og óæskilegar þunganir eru hluti þeirra afleiðinga sem konur líða á stríðshrjáðum svæðum. Ofan á þetta hryllilega ástand bætist svo að nauðsynleg þjónusta, svo sem heilbrigðis- og félagsþjónusta sem ekki síst konur þurfa á að halda, raskast mjög og liggur þjónustan jafnvel alveg niðri vegna átakanna.

Ofbeldi gegn konum í stríði er beintengt samskiptum kynjanna á friðartímum. Kynjahalli í samfélögum og sú mismunun sem konur lifa við er sá jarðvegur sem kynferðisofbeldið vex upp úr. Við megum aldrei sofna á verðinum. Við megum aldrei láta sem jafnrétti sé náð meðan staðan er þessi. Við eigum að fordæma hvort sem eru orð eða gjörðir sem lúta að því að niðurlægja og smætta konur. Og við eigum að tala fyrir friði og standa með raunverulegum fórnarlömbum stríðsins sem alltaf eru óbreyttir borgarar, fyrst og fremst konur og börn.

Við Íslendingar eigum sterkasta kvenleiðtoga heims, Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, sem með orðum sínum og gjörðum hefur talað fyrir kvenfrelsi og friði á heimsvísu um árabil. Í næstu viku mun fara fram ráðstefna kvenleiðtoga í Reykjavík, Reykjavik Global Forum, og treysti ég því að staða kvenna á stríðshrjáðum svæðum verði tekin á dagskrá því að samstaða kvenna um allan heim skiptir máli fyrir okkur öll. Eins og segir á plötunni Áfram stelpur sem kom út á Kvennafrídaginn 1975: Í samstöðunni býr sigur vor!

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×