Skoðun

ESB styður við ís­lenska há­skóla

Lucie Samcová-Hall Allen skrifar

Í síðustu viku hlotnaðist mér sá heiður að flytja ræðu á upphafsviðburði Aurora 2030, sem er nýjasti kafli Aurora háskólasamstarfsins. Háskóli Íslands tekur þátt í Aurora samstarfinu ásamt átta erlendum háskólum og undir forystu Háskóla Íslands hlaut samstarfið, í sumar, tæplega tveggja milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu sem nær yfir fjögur ár. Það eru engir smápeningar og óska ég Aurora samstarfinu og Háskóla Íslands til hamingju með styrkinn.

Árið 2018 hrinti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins af stað nýrri áætlun sem miðar að því að efla samstarf meðal háskóla í Evrópu á öllum starfssviðum með tilliti til kennslu, rannsókna og nýsköpunar. Þessi metnaðarfulla áætlun hlaut nafngiftina „Evrópska háskólaáætlunin“ (e. European Universities Initiative) og er fyrst og fremst fjármögnuð í gegnum Erasmus+, sem margir íslendingar þekkja vel. Þverfagleg og þverþjóðleg nálgun er nauðsynleg til að takast á við þær stóru áskoranir sem að standa komandi kynslóðum fyrir þrifum, svo sem loftslagsvá, ógn gegn lýðræði, og að nýta þau tækifæri sem leynast í stafrænni byltingu. Því hefur Evrópusambandið ákveðið að úthluta hvorki meira né minna en 168 milljörðum króna (1,1 miljarða €) til þessa evrópska háskólasamstarfs á fjárlagatímabilinu 2021-2027 í gegnum Erasmus+.

Evrópsk “háskólabandalög” líkt og Aurora fela í sér mikinn ávinning m.a. með því að bæta alþjóðlega samkeppnishæfni háskólastofnana í Evrópu, sem og að efla evrópsk gildi og sjálfsmynd. Háskólabandalögin skapa einnig fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til að stunda hluta af námi sínu við aðra háskóla innan bandalagsins þar sem háskólar stuðla markvisst að gerð sameiginlegra námsleiða og námskeiða. Sömuleiðis geta akademískir starfsmenn háskóla eflt samstarf sín á milli og stundað rannsóknir og kennslu í háskólum innan bandalagsins.

Í dag eru um 50 evrópsk háskólabandalög til innan áætlunarinnar sem samanstanda af meira en 430 háskólum. Af þeim eru þrír íslenskir háskólar, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Landbúnaðarháskóli Íslands. Háskólinn í Reykjavík tekur þátt í NeurotechEU, ásamt átta öðrum háskólum, sem er samstarfsverkefni fremstu rannsóknaháskóla Evrópu á sviði taugatækni. NeurotechEU bandalagið hlaut um 2,2 milljarða króna í styrk frá ESB, í sumar. Landbúnaðarháskóli Íslands tekur þátt í UNIgreen (The Green European University) bandalaginu ásamt sjö öðrum háskólum og á síðasta ári hlaut samstarfið um 960 milljónir íslenskra króna í styrk frá ESB.

Íslenskar háskólastofnanir hafa rétt til þátttöku í evrópskum samstarfsverkefnum sem þessum og njóta aðgengis að ógrynni styrkja þökk sé EES-samningsins. Þetta er eitt af fjölmörgum dæmum um jákvætt og mikilvægt samstarf sem EES-samningurinn hefur leitt af sér. Á næsta ári fögnum við því að 30 ár eru liðin frá gildistöku EES-samningsins og ég vil bjóða þér að taka þátt í hinum ýmsu viðburðum sem haldnir verða á næstu misserum í tilefni stórafmælis samningsins.

Höfundur er sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×