Skoðun

Sósíal­ista­flokkurinn í upp­hafi 2024

Jökull Sólberg skrifar

Sósíalistaflokkurinn var stofnaður árið 2017, er með tvo kjörna fulltrúa í Reykjavík og hlaut 4,1% atkvæða á landsvísu í síðustu Alþingiskosningum. Flokkurinn studdi B-listann í tveimur sögulegum sigrum í kjöri til formanns og stjórnar Eflingar, og hefur látið styrki ríkisins til stjórnmáflokka renna í félagastarf eins og endurreisn Leigjendasamtakanna ásamt styrkjum til Samstöðvarinnar. Starf flokksins, Leigjendasamtökin og Samstöðin eru öll til húsa í Bolholti 6 sem er nú verið breyta til að vera betur sniðið að þörfum þessa grasrótarstarfs.

Samstöðin heldur úti frétta- og skoðanasíðu og býr til um 21 tíma af samfélagsumræðu á viku í útvarpi og sjónvarpi. Framlag Sósíalistaflokksins var á árinu 2022 um 80% af tekjum en er nú um 22%. Brátt koma 4 krónur fyrir hverja eina sem flokkurinn leggur til frá hlustendum og öðrum styrktaraðilum. Útvarps- og sjónvarpsútsendingar byrjuðu á árinu 2023. Áhorf og hlustun hefur margfaldast á árinu og skapað sér sess sem mikilvægur umræðuvettvangur sem ræður við erfið og flókin mál.

Flokkurinn hefur frá stofnun skilgreint auðvaldið sem andstæðing sinn og að fyrsta markmið sósíalista sé að vinda ofan af nýfrjálshyggjunni sem hefur beygt þjóðfélagið undir sig, holað jöfnunarkerfin og leyft arði auðlinda og atvinnulífs að safnast á sífellt færri hendur. Aðrir mikilvægir samnefnarar eru meðal flokksfélaga sem sameina okkur í baráttunni; stuðningur við verkalýðsbaráttuna, almenn sjónarmið um jafnrétti, samúð með þeim kúguðu og veiku, skýr og afdráttarlaus hernaðarandstaða, réttlát skipting auðlinda og réttlát umskipti í loftslagsmálum.

Sérstaða flokksins er ekki stefnan, per-se, heldur uppbygging starfsins. Allt afl flokksins leitar út á við, frá miðjunni og inn í félagastarf og virkni sem styður við öflugri umræðu og baráttu ólíkra hópa. Þetta er andstætt þeirri þróun sem hefur orðið á starfi annarra flokka sem snýst í auknum mæli um frama framlínufólks sem er lyft sífellt hærra. Eftir situr veik grasrót og þar með lakari tenging við fólkið í landinu, kröfur þess og drauma.

Sósíalistaflokkurinn á gjöfult ár að baki, á þátt í róttækari verkalýðsbaráttu, efldri rödd leigjenda og hefur staðið á bak við mörg mikilvæg mótmæli — allt með því að tengjast öðrum félögum og mynda þannig öflugri heild á vinstrinu. Ég er spenntur að halda áfram að kynnast mögnuðu fólki í hreyfingunni á nýju ári. Gleðilegt nýtt ár Sósíalistar um land allt!

Höfundur er ritari framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×