Skoðun

Af­brota­varnir gegn skipu­lögðum glæpum

Karl Steinar Valsson skrifar

Afbrotavarnir eru eitt af mikilvægustu hlutverkum sem lögreglan gegnir. Heitið afbrotavarnir er fengið úr 1. grein lögreglulaga nr. 90/1996 þar sem hlutverk lögreglu eru skilgreind. Í b-lið segir svo [Hlutverk lögreglu er:] „að stemma stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins.“

Með ákvæðinu er lögð sú skylda á lögreglu að draga úr hættunni á afbrotum og hugsanlegum skaðlegum áhrifum þeirra á einstaklinga og samfélag okkar, þar með talið ótta við afbrot, með því að grípa inn í til að hafa áhrif á margvíslegar orsakir þeirra. Til þess að sinna þessu hlutverki þarf skýra stefnumörkun stjórnvalda og lagaheimildir, þverfaglegt samstarf við lykilaðila, menntaðan mannafla, ákvarðanatöku byggða á gögnum og aðgang að tækjum og búnaði sem þörf er á hverju sinni.

Hlaðborð afbrota

Í skýrslum greiningardeildar ríkislögreglustjóra koma fram áhyggjur af vaxandi umfangi skipulagðrar brotastarfsemi með aukinni notkun brotahópa á stafrænni tækni. Meðal þeirra brota sem slíkir hópar geta tengst eru alvarleg ofbeldisbrot, vændi, fíkniefnabrot, fjársvik, peningaþvætti og skipulagður þjófnaður. Fíkniefnamarkaðurinn hér líkist æ meira þeim evrópska þar sem viðskipti hafa færst yfir á smáforrit og samfélagsmiðla. Daglega verður almenningur var við skipulagða net- og tölvuglæpi og hafa tilkynnt atvik til CERT-ÍS tvöfaldast frá árinu 2019. Ein alvarlegasta birtingarmynd skipulagðrar glæpastarfsemi er mansal þ.m.t. vinnumansal, kynlífsmansal, nauðungarhjónaband, þvinguð afbrot eða þvingað betl auk allra birtingarmynda þess að börnum sé smyglað yfir landamæri, þau misnotuð eða sæti þrælkun. Benda upplýsingar lögreglu til þess að einstaklingar hafi verið fluttir til Íslands með skipulögðum hætti til að sæta mansali og misneytingu.

Skýrari lagaheimildir

Með auknum umsvifum skipulagðra brotahópa gæti íslenskt samfélag þróast lengra í átt að því sem hefur orðið raunin í nágrannaríkjum Íslands þar sem ofbeldisfullir brotahópar hafa náð fótfestu og skapað víðtækar neikvæðar afleiðingar fyrir samfélagið í heild sinni.

Frumvarp það um breytingar á lögreglulögum sem nú liggur fyrir Alþingi er til þess fallið hjálpa til að færa íslenska löggjöf varðandi afbrotavarnir nær norrænni löggjöf, fylgja eftir þróun stafrænnar tækni og gera lögreglu kleift að sinna afbrotavarnahlutverki sínu á skilvirkari og betri hátt.

Höfundur er yfirlögregluþjónn öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×