Skoðun

Skyn­semi í rekstri Lands­bankans

Stefán Ólafsson skrifar

Landsbankinn virðist hafa verið betur rekinn undanfarin ár en hinir bankarnir, einkabankinn Arion og Íslandsbanki sem hefur verið að hluta í einkaeigu. Afkoman hefur oft verið betri hjá Landsbankanum og hann hefur verið með langlægsta kostnaðarhlutfallið (sjá hér).

Stjórnendur Landsbankans vilja nú styrkja rekstur hans enn frekar, eigendum sínum til hagsbóta, en ríkið á um 98,2% í bankanum. Augljós leið til þess er að kaupa starfandi tryggingafélag (TM) því mikil samlegðaráhrif fylgja því. Það getur bætt rekstur bankans, bætt þjónustuna við viðskiptavini og gert eign ríkisins enn verðmætari og skilað meiri arði í ríkiskassann, til að greiða fyrir sameiginlegar þarfir þjóðarinnar.

Þetta hafa bankar erlendis gert og Arion hefur farið þessa leið og stjórnendur Íslandsbanka vildu líka ná að festa kaup á TM. Almælt hefur verið að þetta sé skynsamlegt að gera til að bæta rekstur banka.

En Sjálfstæðismenn og Viðreisnarmenn (ESB-deildin í Sjálfstæðisflokknum) eru æfir yfir því að Landsbankinn vilji taka skynsamlega rekstrarlega ákvörðun með kaupum á TM. En sú ákvörðun bankans er samt í fullu samræmi við venjulegan málflutning rekstrarmanna í Sjálfstæðisflokknum og almennt á fjármálamarkaði.

Upphlaup á fölskum forsendum

Hvers vegna er þá þetta rosalega upphlaup núna í pólitíkinni gegn ákvörðun stjórnenda Landsbankans?

Jú það er vegna þess að sjálfgræðismennirnir í Sjálfstæðisflokknum eru með önnur áform en þau að láta rekstur Landsbankans skila góðum árangri á meðan hann er í eigu ríkisins. Þeir vilja koma honum í hendur einkarekinna auðmanna í flokknum - og það sem allra fyrst. Þeir vilja koma tugmilljarða hagnaði bankanna á ári hverju í vasa auðmanna flokksins.

Góður árangur Landsbankans í rekstri, eins og verið hefur undanfarin ár, gengur gegn málflutningi Sjálfstæðismanna um að það sé betra og skynsamlegra að bankar séu í einkaeigu.

"Ríkið er slæmur eigandi banka", segja þeir. En það er öðru nær. Ríkið er góður eigandi bæði banka og orkufyrirtækja. Það hefur reynslan sýnt.

Aldrei hafa verið gerð meiri mistök í rekstri fjármálafyrirtækja hér á landi en eftir að bankarnir voru allir komnir í hendur einkaeigenda árið 2003. Það tók einungis um 5 ár að reka þá alla í þrot! Á leiðinni höfðu þeir náð því að drekkja stórum hluta atvinnulífsins í skuldum vegna ævintýralegs brasks og settu samfélagið næstum á hliðina. Þetta var allt gert til að hámarka gróða hinna nýju eigenda bankanna og annarra braskara. Það var nú öll snillin og "skynsemin".

Og svo þurfti ríkið að koma til bjargar þegar allt var komið í óefni í hruninu.

Sjálfstæðismenn eru enn á sömu vegferð. Þjóðin þarf að átta sig á því og verjast þessari ásókn sjálfgræðismanna í arðvænlegar eignir þjóðarinnar - hvort sem eru bankar eða orkufyrirtæki.

Stefán Ólafsson er prófessor emeritus við HÍ.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×