Íslendingalið Magdeburg nálgast toppinn á ný Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. apríl 2024 17:06 Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk fyrir Magdeburg í dag. Gregor Fischer/picture alliance via Getty Images Íslendingalið Magdeburg vann öruggan níu marka sigur er liðið tók á móti Stuttgart í þýska handboltanum í dag. Liðið er nú aðeins einu stigi frá toppsæti deildarinnar.
Eftir að hafa lent tveimur mörkum undir í upphafi leiks höfðu heimamenn í Magdeburg góða stjórn á leiknum og náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik. Gestirnir klóruðu þó ó bakkann og minnkuðu niður í eitt mark fyrir hlé og staðan var 19-18 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Í síðari hálfleik náði Magdeburg aftur umm fjögurra marka forystu á stuttum tíma áður en liðið jók forskot sitt í átta mörk með góðum kafla þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Þar með voru úrslitin ráðin og heimamenn fögnuðu að lokum níu marka sigri, 40-31. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur Íslendinganna í Magdeburg með sex mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson bætti þremur mörkum við. Janus Daði Smárason komst ekki á blað. Magdeburg er nú með 48 stig í öðru sæti deildarinnar, einu stigi á eftir toppliði Füchse Berlin. Magdeburg á þó leik til góða og kemur sér á toppinn með sigri í þeim leik.
Þýski handboltinn Mest lesið Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Handbolti Fór holu í höggi yfir húsið sitt Golf Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst Fótbolti Landsliðskonurnar okkar hrifnar af IceGuys Fótbolti „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Fótbolti Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Handbolti Fleiri fréttir Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Sameinast litla bróður hjá Kolstad Tímabært að breyta til Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Íslendingaliðin töpuðu bæði Ísland tapaði með minnsta mun Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Sjá meira