Innlent

Í­búar sváfu vært meðan á öllu gekk á jarð­hæðinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Konan fannst látin í húsi í Naustahverfinu á Akureyri. Lítill samgangur er á milli íbúa í fjölbýlishúsinu þar sem er að finna ellefu íbúðir.
Konan fannst látin í húsi í Naustahverfinu á Akureyri. Lítill samgangur er á milli íbúa í fjölbýlishúsinu þar sem er að finna ellefu íbúðir. Já.is

Íbúar í fjölbýlishúsi í Naustahverfinu á Akureyri þar sem kona fannst látin á fimmta tímanum í nótt virðast flestir hafa sofið á sínu græna eyra í nótt og ekki tekið eftir neinu. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni sem handtekinn var á vettvangi vegna málsins.

Lögregla lýsir því að hafa klukkan hálf fimm í nótt verið kölluð að fjölbýlishúsinu. Fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang hafi verið vísað á meðvitundarlausa konu í íbúðinni og endurlífgunartilraunir hafist þegar í stað. Samkvæmt heimildum fréttastofu er íbúðin sem um ræðir á jarðhæðinni.

Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur. Konan var úrskurðuð látin á vettvangi.

Lögregla segir grun um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Í íbúðinni var annar einstaklingur og var hann handtekinn í þágu rannsóknar málsins og nýtur réttarstöðu sakbornings. Krafa um gæsluvarðhald yfir honum verður lögð fram fyrir dómi í dag. Það hafði enn ekki verið gert á fjórða tímanum í dag..

Fjölbýlishúsið stendur við Kjarnagötu á Akureyri og er í eigu leigufélagsins Heimstaden. Íbúi í húsinu sem fréttastofa ræddi við taldi að í íbúðinni byggju hjón í kringum sextugsaldur ásamt syni á þrítugsaldri. Þau hefðu flutt inn í húsið í vetur.

Íbúar í húsinu sem fréttastofa ræddi við eiga það sameiginlegt að hafa ekki vaknað við læti í nótt. Þegar fólk vaknaði í morgun blasti við lögreglubifreið fyrir utan og hefur íbúum í húsinu meðal annars verið meinað að henda rusli.

Fram kom í máli íbúanna sem vildu ekki láta nafns síns getið vegna þess að um harmleik er að ræða að reglulega hafi heyrst hróp og köll úr íbúðinni.

Skarphéðinn Aðalsteinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir litlar upplýsingar hægt að veita á frumstigum rannsóknar vegna rannsóknarhagsmuna. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sé mætt norður til að aðstoða á vettvangi auk réttarmeinafræðings. Farið verði fram á gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna en Skarphéðinn hafði sjálfur ekki upplýsingar um lengdina sem farið yrði fram á. Ákærusvið sæi um það. Algengt er að farið sé fram á vikulagt gæsluvarðhald í fyrsta kasti.


Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við öllum ábendingum og myndum á netfangið [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.


Tengdar fréttir

Grunur um manndráp á Akureyri

Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar andlát konu sem fannst látin í íbúðarhúsi á Akureyri í nótt. Einn hefur verið verið handtekinn vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×