Skoðun

Ég kýs Baldur

Guðrún Rögnvaldardóttir skrifar

Ég er svo heppin að eiga dóttur sem er lesbía. Í gegnum hana og störf okkar beggja innan hinsegin samfélagsins hef ég kynnst svo mörgu yndislegu fólki og lært svo margt um samfélagið okkar sem mér var áður hulið. Dóttir mín var um tíma í stjórn félags hinsegin stúdenta – félagsins sem stofnað var að frumkvæði Baldurs Þórhallssonar og fleiri. Sjálf var ég um tíma formaður samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, og tók við formennskunni af tengdamóður Baldurs.

Ég er svo ofboðslega þakklát þeim mörgu sem ruddu brautina hér á Íslandi hvað varðar réttindamál, sýnileika og viðurkenningu samkynhneigðra og alls hinsegin fólks. Það kostaði mikil átök og miklar fórnir fjölmargra einstaklinga að komast þangað sem við sem samfélag erum í dag.

Fyrir þátt Baldurs Þórhallssonar í þessari mannréttindabaráttu – og ekki síður fyrir að lyfta henni upp í tengslum við komandi forsetakosningar – finnst mér hann eiga skilið atkvæði mitt og allra þeirra sem láta sig hag hinsegin fólks varða.

Áherslur Baldurs í kosningabaráttunni hugnast mér einnig vel. Málefni landsbyggðarinnar eru honum hugleikin. Hann vill setja mannréttindamál, málefni barna og ungmenna og annarra sem standa höllum fæti í samfélaginu á oddinn. Og auðvitað eru málefni og réttindi hinsegin fólks og fjölskyldna þeirra einnig í fyrirrúmi.

En ég myndi líka kjósa Baldur þótt hann væri ekki hommi.

Sem stjórnmálafræðingur er Baldur virtur fræðimaður, á Íslandi sem og á alþjóðlegum vettvangi. Hann gjörþekkir íslenska stjórnmálakerfið og hefur einnig yfirgripsmikla þekkingu á þeim ógnum og tækifærum sem Ísland sem smáríki stendur frammi fyrir. Á mann sem býr yfir slíkri þekkingu og nýtur slíkrar virðingar er hlustað, innanlands sem utan landsteinanna, og það skiptir máli þegar þörf er á að tala máli Íslands.

Ég var nemandi Baldurs í HÍ þegar ég var í meistaranámi í opinberri stjórnsýslu fyrir hátt í tuttugu árum, og fékk hann til að leiðbeina mér í meistaraverkefninu. Það er sjálfsagt ekki auðvelt að leiðbeina nemanda sem er 10 árum eldri en kennarinn og þykist þar að auki vita allt um efnið, en Baldur reyndist frábær leiðbeinandi. Hann spurði gagnrýninna spurninga en sýndi einnig diplómatíska hæfileika. Hvort tveggja kostir sem forseti þarf að mínu viti að hafa.

En mestu máli skiptir að forseti okkar sé góð, heiðarleg og umfram allt einlæg manneskja, sem þjóðin treystir. Baldur Þórhallsson er að mínu mati fremstur meðal margra álitlegra frambjóðenda.

Ég kýs því Baldur.

Höfundur er verkfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×