Skoðun

ALDIN kallar eftir loftslagsaðgerðum

Árni Bragason, Halldór Reynisson, Heiðrun Guðmundsdóttir, Dagný Halldórsdóttir og Tryggvi Felixson skrifa

Nær daglega fáum við upplýsingar um válegar breytingar á loftslagi af mannavöldum. Ástandið er grafalvarlegt og ógnvekjandi. En viðbrögðin í engu samræmi við vandann sem blasir við okkur og ekki síst afkomendum okkar.

„Aldin“ er heitið á ört stækkandi hreyfingu fólks sem komið er á þriðja aldursskeiðið. Mörg erum við afar og ömmur. Við höfum notið betri efnislegra lífsgæða en nokkur fyrri kynslóð Íslendinga. Við erum líka nógu gömul til að muna eftir býsna sjálfbærum lífstíl foreldra okkar. Við höfum upplifað breytingar sem við lengi vel héldum að væru eingöngu framfarir. Annað hefur komið á daginn. Þessar svokölluðu framfarir í lífskjörum gætu orðið dýru verði keyptar: reikningurinn lendir á komandi kynslóðum, barnabörnunum okkar. Við viljum leggja okkar lóð á vogaskálarnar til að þær breytingar sem þarf að innleiða komist sem fyrst til framkvæmda.

Aldin er þekkingarsamfélag sem sprettur úr hópi náttúruunnenda og sérfræðinga sem hafa lifað langa starfsævi og búa að fjölbreyttri reynslu. Skipulag starfsins er frjálslegt og lagar sig að verkefnum á hverjum tíma en hefur að markmiði að miðla þekkingu og knýja á um raunhæfar lausnir í loftslagsmálum. Við erum viðbótarliðsveit við mikilvæg umhverfisverndarsamtök eins og Landvernd, Unga umhverfisverndarsinna og Náttúruverndarsamtök Íslands. Við höfum átt reglulega fundi undanfarin misseri, fræðst og rætt um hinar ýmsu hliðar hamfarahlýnunar og nauðsynlegar aðgerðir til að sporna við henni.

En við gerum meira en að ræða vandann. Við ætlum okkur að vekja athygli á því hvernig stjórnvöldum, atvinnulífinu og almenningi gengur að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Einnig hvernig Íslandi gengur að standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum og að ná markmiðum sínum. Og við munum líka vekja athygli á því sem vel er gert og er til eftirbreytni.

Aldin tekur þátt í Loftslagsdeginum í Hörpu 28. maí og veitir þar upplýsingar um hreyfinguna .

Höfundar sitja í stýrihópi Aldins, eldri aðgerðasinna gegn loftslagsvá.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×