Skoðun

Breiðar axlir og stór hjörtu

Ingunn Rós Kristjánsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifa

„Við Strandakonur erum með breiðar axlir og stór hjörtu“. Þetta sagði Halla Tómasdóttir við okkur vinkonurnar þegar við tókum hana tali eftir pallborðsumræður Ungra athafnakvenna, þar sem Halla, ásamt öðrum kvenframbjóðendum svaraði spurningum áhorfenda. Að öðrum frambjóðendum ólöstuðum, mætti Halla Tómasdóttir á viðburðinn með skýr svör og hleypti okkur í salnum nær sér. Hún leyfði okkur að kynnast sér á dýpri hátt og bar fram skýra sýn fyrir embætti forseta Íslands og framtíð landsins, án þess að vera bara með endurtekna frasa eða gagnrýna aðra frambjóðendur.

Þegar við ræddum við hana eftir viðburðinn komumst við að því að við eigum allar ættir að rekja vestur á Strandir. Einnig deildum við því með Höllu að þegar við vorum 17 og 18 ára menntaskólastelpur höfðum við haft samband við kosningarteymið hennar og spurt hvort við gætum ekki orðið að liði og uppúr því gengið með bæklinga í hús fyrir hennar hönd fyrir vestan. Þá var önnur okkar ekki einu sinni með kosningarétt og við höfðum hvorug hitt hana. En hrifist af framboði hennar. Þegar þessi kosningabarátta hófst vissi hvorug okkar hvert okkar atkvæði færu í þetta skiptið, þótt við hefðum verið hrifnar af Höllu fyrir átta árum síðan. Þessi viðburður endurvakti áhuga okkar á að kynnast Höllu betur.

Við fórum að kynna okkur það sem hún hafði gert frá síðustu kosningum og hennar stefnumál. Við ákváðum síðan að við vildum hitta hana aftur og mættum á kosningateiti unga fólksins sem hún stóð fyrir. Þar hittum við hana aftur og hún mundi eftir okkur “Strandakonunum” eins og hún orðaði það og mundi einnig eftir öllu okkar samtali. Það sýndi okkur báðum að þarna er manneskja sem gefur sig virkilega að fólki og er einlæg í sinni viðleitni að kynnast fólkinu sem hún talar við. Hún er sem sagt ekki ótrúlega góð í að þykjast vera áhugasöm, hún er það í raun og veru.

Samtöl okkar við Höllu og sýn hennar á embættið staðfestu endanlega fyrir okkur báðum hvert atkvæðin okkar færu. Þarna er kona sem kemur reynslunni ríkari inn í þessa kosningabaráttu, hafandi ítrekað leitt saman andstæð sjónarmið bæði hér heima og á alþjóðlegum vettvangi, umkringd sterkum egóum og stríðandi hagsmunum, en alltaf staðið keik og ákveðin frammi fyrir þeim verkefnum. Halla Tómasdóttir er með breiðar axlir og stórt hjarta. Hún lætur sig varða velfarnað samfélagsins og einstaklinganna innan þess og tekur málin óhrædd í eigin hendur.

Við teljum að Halla Tómasdóttir sé langbesti kosturinn til að gegna embætti forseta Íslands og munum greiða henni okkar atkvæði þann 1. júní og við hvetjum þig til að gera það líka!

Höfundar eru ungar konur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×