Skoðun

Flestir munu kjósa Katrínu Jakobs­dóttur, beint eða ó­beint, ef…

Reynir Böðvarsson skrifar

Þær eru þrjár sem mælast efst í skoðanakönnunum. Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir og Katrín Jakobsdóttir. Baldur Þórhallsson virðist ekki ná flugi og Jón Gnarr er án efa út úr leiknum. Ef fer sem horfir og ef kjósendur þrjóskast við og halda fast við sinn kandídat þá er nokkuð gefið að Katrín Jakobsdóttir vinnur þessar kosningar, líklegast með minna en 30% fylgi. Semsagt 70+% kjósenda hefðu kjósið einhvern annan en hana. Þetta á náttúrulega líka við um alla aðra frambjóðendur sem fá flest atkvæði þegar dreifingin er svona stór. Katrín Jakobsdóttir á sér þó nokkra sérstöðu, margir vilja hana enganvegin sem forseta vegna skyndilegs afgangs sem forsætisráðherra en líklega þó mest vegna þess að hún lyfti óvinsælasta stjórnmálamanni sögunnar á Íslandi í forsætisráðherrastól, Bjarna Benediktssyni. Margir eru þeir sem geta einfaldlega ekki hugsað sér hana sem forseta en geta sætt sig við tvo eða þrjá af hinum frambjóðendunum. Þar sem bæði Jón Gnarr og Baldur eru líklegast ekki með í leiknum lengur þá eru það Höllurnar tvær sem valið stendur um auk Katrínar. Þrjár mjög frambærilegar konur en….

Við erum líka mörg sem getum ekki hugsað okkur Höllu Tómasdóttur í þetta embætti, við viljum einfaldlega ekki fulltrúa peningavaldsins á Bessastaði. Á sama hátt og andstæðingar framboðs Katrínar Jakobsdóttur benda á fortíð hennar í stjórnmálum bendum við á fortíð Höllu Tómasdóttur í viðskiptalífinu. Við getum einfaldlega ekki sætt okkur við að manneskja með þessa fortíð, grundvallar sjónarmið og hvað varðar val á samstarfsmönnum meðal annars, fái aðgang að þeim (stökk)palli sem þetta embætti augljóslega er. Við viljum manneskju sem er ein af okkur, sem við getum borið okkur saman við og við getum treyst. Við þurfum ekki endilega vel smurðan munn sölumennsku stjórnmála eða viðskipta, við þurfum manneskju sem kemur úr okkar röðum sem við finnum nærveru við, jafnvel þegar hún er á skjánum.

Halla Hrund Logadóttir er þessi manneskja og er að mínu mati eini frambjóðandinn sem hefur möguleika á að sigra Katrínu Jakobsdóttur í þessum kosningum. Þeir sem velja að setja kross við einhvern hinna framjóðendanna er í rauninni, þótt óbeint sé, að kjósa Katrínu Jakobsdóttur sem forseta Íslands. Ég hef persónulega ekki mikið á móti því, Katrín er náttúrulega óvenju hæf í þetta embætti, en ég veit að margir eiga erfitt með að sjá sitt atkvæði falla á hana og þá get ég bent þeim á hæfasta og besta frambóðandann sem er náttúrulega að Halla Hrund Logadóttir.

Höfundur er jarðskjálftafræðingur á eftirlaunum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×