Skoðun

Þolinmóðan mannvin á Bessa­staði!

Aleksandra Wasilewska skrifar

Forseti Íslands á fyrst og fremst að vera fólksins. Hann þarf að vera mannlegur, búa yfir góðri samvinnuhæfni og vera fær í samskiptum. Þar stendur Baldur Þórhallsson sannarlega sterkur eins og í mörgu öðru sem skiptir miklu máli þegar kemur að embætti forseta Íslands. Hann er nefnilega líka sérfræðingur í stöðu smáríkja í heiminum, þekkir stjórnskipan landsins afar vel og hefur skrifað meira um utanríkisstefnu Íslands en flest.

Mig langar hins vegar að lyfta sérstaklega upp þeim mikilvæga og lýsandi eiginleika að sinna og viðhalda fallegum og heilbrigðum samböndum í samsettri fjölskyldu. Þar eru þeir Baldur og Felix miklar fyrirmyndir fyrir hefðbundnar fjölskyldur og fyrir nýjar fjölskyldugerðir. Samband þeirra við börn og barnabörn er einstaklega fallegt og ekki síður samband þeirra við barnsmæður sínar sem báðar hafa einlæglega lýst yfir stuðningi við Baldur.

Það að viðhalda svona heilbrigðu fjölskyldusambandi eftir skilnað getur sagt mikið um einstakling. Til þess þarf þroska, ríka tilfinningagreind og góða aðlögunarhæfni. Báðir eru þeir, Baldur og Felix, miklir mannvinir með fallega framkomu og myndu sóma sér vel á Bessastöðum eða hvar sem þeir kæmu fram fyrir hönd þjóðarinnar.

Það er mikilvægt að forseti geti sýnt stillingu og hafi þolinmæði fyrir öðru fólki og skoðunum þess. Framkoma sumra í síðasta pallborði Heimildarinnar sýndi að frambjóðendur mátast misvel í hlutverk forseta Íslands. Það er mikilvægt að sýna samferðafólki sínu virðingu og forseti landsins á að fara fram með góðu fordæmi. Að koma fram af virðingu við samferðafólk sitt, líka þá sem þú ert ósammála eða ert að keppa við, er eitthvað sem fólk ætti að tileinka sér, ekki síst fólk sem er í valdastöðum samfélagsins eða sækist eftir að komast í slíkar.

Baldur er hreinn og beinn. Á bakvið hann standa hvorki valdaelítur né hópur fjármagnseigenda heldur er framboðið drifið áfram með starfi grasrótarinnar. Ég þarf að geta treyst því að forsetinn standi með almenningi og þess vegna kýs ég Baldur.

Höfundur er flugfreyja og nemi í viðskiptafræði.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×