Skoðun

Nokkrar stað­reyndir um Ís­land, Katrínu og Gaza

Álfheiður Ingadóttir skrifar

Ég hef unnið með Katrínu Jakobsdóttur í 21 ár og alla tíð dáðst að kjarki hennar og áræðni sem er mun meiri en hjá flestum stjórnmálamönnum. Að sama skapi hef ég undrast alla þá neikvæðni og níð sem heyrist um þessa mætu konu í tilefni forsetakosninganna. Flest er aðeins til þess fallið að hella úr eyrunum og er alls ekki svara vert. Þó er ástæða til að rifja upp nokkrar staðreyndir vegna áróðursins um Palestínu og Gaza.

Ein ástæða þess að ég treysti Katrínu best fyrir embætti forseta Íslands er nefnilega að hún hefur sem almennur borgari, formaður VG, þingmaður, menntamálaráðherra og forsætisráðherra ávallt talað fyrir friði, beitt sér af alefli fyrir málstað Palestínumanna, haldið fram tveggja ríkja lausn sem leið til friðar, fundað með ráðamönnum Palestínu og þetta síðasta hálfa hörmungarár margoft krafist tafarlauss vopnahlés og óhindraðs flutnings hjálpargagna til stríðshrjáðra og innilokaðra íbúa á Gaza. Hún hefur opinberlega sem forsætisráðherra Íslands fordæmt harðlega árásir Ísraelshers á saklausa íbúa Gaza og krafist þess að alþjóðalög verði virt. Og ef menn rengja þetta þá er einfalt að fletta upp á netinu og á Alþingisvefnum sem mun staðfesta þetta allt og meira til:

Staðreyndirnar í málinu

1. Katrín Jakobsdóttir beitti sér sem ráðherra menntamála og varaformaður annars tveggja stjórnarflokka þegar Ísland, fyrst ríkja Vestur-Evrópu, viðurkenndi Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki 2011.

2. Katrín var forsætisráðherra þegar framlag Íslands til Palestínsku flóttamannahjálparinnar UNRWA, var tvöfaldað á síðasta ári, framlag sem síðan var greitt í apríl sl eins og alltaf stóð til. Það er óskiljanlegt að gagnrýnendur minnist aldrei á þetta.

3. Katrín var forsætisráðherra þegar Ísland um miðjan október sl, eitt Norðurlandanna, setti í forgang víðtæka fjölskyldusameiningu Palestínumanna sem búsettir eru hér á landi sem leiddi til þess að 160 slík leyfi voru veitt.

4. Katrín var forsætisráðherra þegar Alþingi gekk í byrjun nóvember sl einróma þvert gegn umdeildri hjásetu Íslands á þingi SÞ og krafðist vopnahlés á Gaza. En eins og fram hefur komið var hjásetan án samráðs eða vitneskju Katrínar. Af einhverjum ástæðum hefur enginn viljað ræða síðari atkvæðagreiðslur þar sem Ísland hefur verið í hópi þeirra sem lengst hafa gengið og reynt að ná samstöðu með Norðurlöndum þar um.

Hafa skal það...

Embætti forseta snýst sannarlega um svo margt annað en utanríkispólitík og þar er einnig af nógu að taka þegar mannkostir og reynsla Katrínar Jakobsdóttur er vegin og metin. Hins vegar tel ég ástæðu til að draga hér fram nokkrar staðreyndir þessa mikilvæga máls, vegna þess að rangfærslurnar eru svo margar og margítrekaðar að þær þarfnast einfaldlega leiðréttingar.

Göngum svo glöð til kosninga á morgun og veljum okkur góðan forseta.

Höfundur er fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna og ráðherra.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×