Skoðun

Refasveitarvegur

Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Vegagerðin fær miklar þakkir fyrir að leggja sléttan, breiðan og góðan veg um Refasveitina miðja frá þjóðvegi 1 að tveimur brúm yfir Laxá á Refasveit, nýja brú út á Skagaströnd en hina á veginum upp í Norðurárdal og þaðan yfir Biskupsleiti austur í Skagafjörð. 

Elsta heimild um nafnið Refasveit, sem mér er kunnugt, er jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín sem þeir tóku saman fyrir Engihlíðarhrepp haustið 1708. Jarðabókin er hrepps- og jarðalýsing, byggð á eiðsvörnum vitnisburði bænda í sveitinni. Þar stendur skrifað að Vatnahverfi sé fyrsti bærinn í Refasveit, þá Enni og síðan eru bæirnir taldir upp hver af öðrum: bakkabæirnir, Síða, Kúskerpi og Lækjardalsbæirnir, Mýrarbæirnir en við Úfagil í Laxárdal er skrifað að Refasveit taki þar enda. Höfuðbólin í Langadal, hjáleigur þeirra í Laxárdal og aðrir bæir þar, sem tilheyrðu hreppnum, voru ekki í Refasveit. Ekki einu sinni Refsstaðir.

Páll Vídalín lögmaður bjó í Víðidalstungu í vestursýslunni og því öllum hnútum kunnugur í húnvetnskum sveitum. Jón Espólín sagði Pál lærðan mann og stórvitran en “haldinn nokkuð grályndur”. Það má ímynda sér að lögmaðurinn hafi strítt góðbændunum í Langadal á því að þeir byggju í Refasveit en þeir svarað fyrir sig með sannleika um hvar hún var og er, enda verkefnið allt í anda upplýsingarstefnunnar sem þarna var að hefjast og stendur enn. Talað var um Efri-byggð og Neðri-byggð í sveitinni og þegar vegur var lagður um hvorn hluta fékk sá um neðribyggðina það nafn frá Vegagerðinni en sá efri var með réttu nefndur Skagastrandarvegur enda lá leiðin þangað. 

Við innkeyrsluna á norðurenda þess hluta Skagastrandarvegar sem liggur um Efri-byggð, vegur sem ætti að fá nafn eftir því, hefur Vegagerðin nú sett upp skilti sem á stendur „Refasveit“. Frá skiltinu er ágætt útsýni að hól sem heitir Gildran en hóllinn er friðaður samkvæmt úrskurði Minjavarðar Norðurlands vestra enda er þar að finna ferhyrnda grjóthleðslu sem verið hefur refagildra. Þarna voru líka Skógargötur þar sem nýi vegurinn liggur, sagði okkur Garðar bóndi í Kúskerpi. Standi hugur Vegagerðarinnar til þess að halda gömlu nafni til haga, þá er nýi vegurinn um miðja sveitina réttnefndur Refasveitarvegur. Skiltið mætti nota við Blöndubrú áður en ekið er yfir til norðurs enda sá hluti Blönduósbæjar í Refasveit.

Höfundur er kennari í Háskólanum á Akureyri en skrifar í Kúskerpi á Refasveit.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×