Skoðun

Bóndinn og snákurinn

Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Í síðustu viku aflýsti Taylor Swift þrennum tónleikum í Vínarborg vegna hryðjuverkahótana. Í kjölfarið voru þrír ungir menn með tengsl við íslamska ríkið (ISIS) handteknir. Án vafa eru töluvert fleiri sem aðhyllast hugmyndafræði ISIS búsettir á Vesturlöndum.

Líkt og áður langar mig að undirstrika muninn á íslam og íslamisma. Íslam er trú en íslamismi er pólitísk hugmyndafræði. Íslamistar gera kröfu um algjöran samruna ríkis og trúar undir kúgandi alræðisstjórn. Sem dæmi um íslamistasamtök má nefna ISIS, Hizbollah og Hamassamtökin. Fjölmörg ríki skilgreina þessi samtök sem hryðjuverkasamtök.

Það vakti athygli mína fyrir nokkru þegar fyrrverandi formaður Íslands-Palestínu skrifaði langa færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann syrgði nýfallinn leiðtoga Hamassamtakanna. Eflaust sjá andstæðingar Ísraels meðlimi Hamas sem hentuga bandamenn gegn sameiginlegum óvini þeirra. Auk þess sjá þeir Hamassamtökin sem tapliðið sem þeir verða að styðja.

En stuðningsmönnum Hamas væri nær að draga lærdóm af dæmisögunni um bóndann og snákinn. Í henni gengur bóndi einn um akur og sér meðvitundarlausan snák á jörðinni. Bóndinn veit að snákurinn er hættulegur en samúð hans ber hann ofurliði. Hann tekur upp snákinn til að vekja hann til meðvitundar. En þegar snákurinn vaknar bítur hann bóndann og drepur hann.

Þeir sem lýsa yfir stuðningi við Hamassamtökin hljóta að gera sér grein fyrir að stuðningurinn er ekki gagnkvæmur. Hlutir sem eru flestum Vesturlandabúum mikilvægir, til dæmis veraldleg menntun, kvenfrelsi og lýðræði eru eitur í beinum Hamassamtakanna. Fyrirætlanir þeirra um Gyðinga, sem bæði stofnsáttmáli samtakanna og ummæli meðlima þeirra vitna um, ættu einnig að vera öllum ljósar.

En Hamassamtökin hafa einnig fyrirætlanir um Vesturlönd. Einn leiðtoga samtakanna, Mahmoud Al-Zahar, sagði í viðtali við Reuters að Vesturlönd væru „siðferðislega snauð“ og hampaði í sömu andrá kúgandi gildum Hamassamtakanna. Í sjónvarpsviðtali fyrir tveimur árum sagði hann: „Við erum ekki einungis að tala um að frelsa okkar eigið land.“ Með öðrum orðum munu samtökin ekki láta staðar numið við útrýmingu Ísraels.

Það er ekki hægt að ganga að því sem vísu að herskáir íslamistar lúti í lægra haldi fyrir Vesturlöndum. Vesturlandabúar gætu einn daginn vaknað upp við þann vonda draum að búa við kúgandi stjórn þeirra. Þá væri fleira en þrennum Taylor Swift-tónleikum aflýst. Þá væri of seint að hreyfa við mótbárum. Stuðningsmenn Hamassamtakanna mættu því spyrja sig hvort stuðningur þeirra sé of dýru verði keyptur.

Höfundur er stjórnarmeðlimur MIFF (Með Ísrael fyrir friði) á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×