Innlent

Hand­tekinn grunaður um stunguárás í mið­borginni

Eiður Þór Árnason skrifar
Lögregla var með mikinn viðbúnað á svæðinu. Ljósmyndin er úr safni. 
Lögregla var með mikinn viðbúnað á svæðinu. Ljósmyndin er úr safni.  Vísir/Vilhelm

Lögreglan handtók í gærkvöldi einstakling sem grunaður er um að hafa stungið annan með hnífi í miðborg Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Málið er í rannsókn og telst vera alvarleg líkamsárás. Lögregla hyggst ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Mikill viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs var í miðborg Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Heyra mátti mikið sírenuvæl í miðborginni og sáu sjónarvottar bæði lögreglu- og sjúkrabíla á mikilli hraðferð í miðborginni þegar klukkan var farin að ganga miðnætti.

Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við ábendingum á netfangið [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.


Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum úr síðari tilkynningu lögreglu. 


Tengdar fréttir

Alvarleg líkamsárás í miðborginni

Mikill viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs var í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í kvöld. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það vegna alvarlegrar líkamsárásar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×