Skoðun

Til­gangs­lausi skólinn

Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar

Mamma geturðu gefið mér leyfi í dönsku? Það er eyða strax á eftir og ég er hvort eð er bara að gera verkefni sem ég get klárað heima….

Pabbi geturðu gefið mér leyfi í sundi? Það er hvort eð er bara verið að synda smá og svo fara í pottinn…

Mamma geturðu gefið mér leyfi í íslensku? Það eru kynningar og ekki sjens að ég ætli að kynna fyrir framan hópinn…

Pabbi geturðu gefið mér leyfi í stærðfræði? Það er próf og ég er ekki búin að læra neitt fyrir það. Ég get bara tekið sjúkrapróf eða eitthvað…

Mamma geturðu gefið mér leyfi í skólanum í dag? Ég er hvort eð bara til hádegis og get alveg gert þetta allt bara heima….

Skólaárið í grunnskólum á Íslandi er skilgreint sem 180 kennsludagar.

Fyrsta vika skólaárs, síðasta vika fram að jólaleyfi, fyrsta vikan eftir jólaleyfi, síðasta vikan fyrir páskaleyfi, fyrsta vikan eftir páskaleyfi og síðasta vika skólaárs eiga það sameiginlegt að leyfi nemenda verða algengari en á öðrum tímum. Í sumum tilfellum svo algeng að vart verður kennsluhæft í mörgum hópum víða um land.

Við á Íslandi búum í forréttindasamfélagi þar sem aðgengi að gæðamenntun er gott. Kunnum við gott að meta? Hvar er skólinn í forgangsröð barna og barnafjölskyldna? Hvaða lexíur er skólanum lagt til að kenna ungviði landsins og hvernig á skólum landsins að takast ætlunarverk sitt ef börn mæta mörg ekki til leiks og viðhorfið er slíkt að skólinn er alltof oft í neðsta sæti þegar kemur að forgangsröðun heimila?

Mikilvægt er að foreldrar átti sig á hve mikil áhrif fjarvera frá skóla getur haft á nám og líðan barna sinna. Þau mæta jafnvel stútfull af kvíða inn í skólann sinn því þau vita vart hvað snýr upp né niður í náminu né hvort þau séu að koma eða fara og getur þá skapast vítahringur sem nauðsynlegt er að vinda ofan af (en auðvitað langbest að koma í veg fyrir að rúlli af stað).

Meirihluti foreldra og forráðafólks þekkir vel ábyrgðarhlutverk sitt og sinnir því af alúð. Leyfi barna er í þeim tilfellum ekki tekið af léttvægð og tryggja foreldrar að hlé á skólagöngu barns síns komi hvorki niður á barninu, námi þess né skólastarfi. Börn þeirra eru í skóla sem gegnir mikilvægu hlutverki í lífi þeirra.

Er barnið þitt nokkuð nemandi í tilgangslausa skólanum?

Höfundur er kennari og deildarstjóri í grunnskóla og meðvituð um að margt í lífinu lærist fyrir utan veggi skólakerfisins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×