Skoðun

Við getum ekki beðið í 131 ár

Jódís Skúladóttir skrifar

Árið er 2024 og ekkert land í heiminum hefur náð kynjajafnrétti. Eitt af hverjum þremur löndum hefur ekki tekið framförum á því sviði síðan 2015 og staða kvenna hefur versnað í 18 löndum. Á þessu skriði mun taka 131 ár til viðbótar að ná kynjajafnrétti á heimsvísu.

Í Afganistan hafa konur verið sviptar öllu og ekki einu sinni raddir þeirra mega nú heyrast á almannafæri. Þær syngja nú samt. Nú eru liðin tvö ár síðan mótmælin í Íran, sem eru kennd við Möshu Amini undir slagorðinu Kona, líf frelsi, hófust og í dag búa konur þar við stöðuga ógn um ofbeldi af hendi yfirvalda ef þær fara út úr húsi án blæju eða setja stöðufærslu á samfélagsmiðla. Þær fara samt út með hárið flaksandi í vindinum. Í Frakklandi eru 72 menn ákærðir fyrir að nauðga einni og sömu konunni að undirlagi og með aðstoð eiginmanns hennar. Hún hafnaði réttarhöldum fyrir luktum dyrum vegna þess að hún vill ekki halda hlífiskildi yfir þeim sem brutu gegn henni.

Alls staðar segja konur stopp. Þær standa upp og hafna kúgun, ofbeldi og þöggun feðraveldisins. En í þeirri baráttu eru allt of mörg líf sem verða undir. þrátt fyrir hugrekki kvenna á hverjum stað og þrátt fyrir allan slagina sem þær taka verða þær undir í baráttunni. Um allan heim og ekki síst á samfélagsmiðlum sjáum við vísbendingar um uppgang karllægra gilda og kvenfjandsamlegra viðhorfa sem hægja á baráttunni og hrinda henni jafnvel mörg skref afturábak.

Hér á Íslandi búum við vissulega við meira jafnrétti en gerist í flestum löndum heims en samt verðum við vör við bakslag þegar kemur að viðhorfum í jafnréttismálum. Við sjáum hneigð í áttina til þess að færa konur aftur inn á heimilin með ójöfnum greiðslum í fæðingarorlofi og verðlaunum fyrir þær fjölskyldur sem hafa börn í styttri tíma á leikskóla. Þá eru ótalin öll þau kynferðisbrotamál sem lognast út af í kerfinu og vaxandi ofbeldi í garð kvenna og stúlkna. Launamunur kynjanna er ennþá viðvarandi vandamál og ólaunuð ábyrgð kvenna á heimilishaldi og félagslegum tengslum, skipulagi og velsæld fjölskyldunnar kemur síðan ofan á það.

Kvenfrelsi er ein af grunnstoðum Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs sem felur í sér viðurkenningu á nauðsyn þess að uppræta allar birtingarmyndir kynjamisréttis í samfélaginu.

131 ár er of langur tími til að bíða eftir því að kynjajafnrétti verði náð. Sterk og þétt kvennasamstaða þvert á pólitík og aðra hagsmuni verður vonandi til þess að okkur takist að stytta þessa löngu bið.

Höfundur er þingmaður VG og í framboði til varaformanns hreyfingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×