Skoðun

Tæki­færi til að efla Kötlu jarð­vang

Einar Freyr Elínarson skrifar

Í kjölfar þess að samningur var undirritaður við Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, þar sem tryggður er 10 milljóna króna árlegur stuðningur næstu tvö árin, eru tækifæri til að efla og styrkja Kötlu UNESCO Global Geopark. Innan jarðvangsins er einstök náttúra og hann gegnir mikilvægu hlutverki í að draga fram sérstöðu svæðisins með áherslu á náttúruvernd, fræðslu og menningu. Ráðherra tilkynnti um ákvörðun sína fyrir fullum sal á ráðstefnu evrópskra jarðvanga sem haldin er þessa dagana í Reykjanesbæ og hlaut mikið lof viðstaddra og annarra ræðumanna. Nikolaos Zouros, formaður framkvæmdastjórnar alþjóðlegra jarðvanga (GGN) fagnaði þessu mjög í ávarpi sínu og sagði að þetta væri fordæmi sem önnur ríki ættu að líta til. 

Með auknum stuðningi er jarðvangnum kleift að auka fræðslustarfsemi og rannsóknir á svæðinu, efla innviði fyrir ferðamenn, og búa jarðveg fyrir ný tækifæri til atvinnuuppbyggingar. Jarðvangurinn hefur nú þegar staðið sig afar vel á þessu sviði, og þessi nýi samningur styrkir okkur til að þróa áfram verkefni sem stuðla að sjálfbærri nýtingu og verndun náttúruauðlinda svæðisins. 

Það er mikilvægt að nýta þennan stuðning til að styrkja tengsl okkar við alþjóðlegt net jarðvanga, og gera Katla UNESCO Global Geopark að miðpunkti fyrir rannsóknir og nýsköpun tengda jarðfræði og náttúruvernd. Með aukinni fræðslu til heimamanna og ferðamanna aukum við meðvitund um mikilvægi náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar. 

Verkefnið sem jarðvangurinn vann í samstarfi við Víkurskóla og hlaut Menntaverðlaun Suðurlands á síðasta ári, er frábært dæmi um það hvernig Katla UNESCO Global Geopark hefur lagt sig fram við að fræða næstu kynslóðir um íslenska náttúru. Með áherslu á jarðfræði og með nýstárlegum kennsluaðferðum, veitir þetta verkefni börnum einstakt tækifæri til að kynnast náttúru svæðisins beint. Slík verkefni eru auðvitað mikilvæg fyrir börn almennt, en sérstaklega fyrir börn innflytjenda sem kunna að búa mörg ekki að sama þekkingarlega bakgrunni heima fyrir um íslenska náttúru. Að fá tækifæri til að læra um íslenska náttúru með þessum hætti eykur skilning þeirra á landinu sem þau búa í og hjálpar þeim að mynda sterkari tengsl við samfélagið. Þetta er mikilvægt skref í að efla menntun og náttúruvitund allra barna, óháð bakgrunni þeirra, og undirstrikar þá mikilvægu fræðslu- og samfélagslegu þætti sem jarðvangurinn stendur fyrir. 

Ef vel er haldið á málum þá eru mikil tækifæri í eflingu Kötlu UNESCO Global Geopark. Áhrifin sem hann getur haft til góðs þegar kemur að fræðslu, rannsóknarstarfi og ferðaþjónustu geta verið heilmikil. Það er því mikið fagnaðarefni að hið opinbera, sveitarfélögin og nú ríkið líka, skuli með stuðningi sínum gera okkur kleift að grípa þessi tækifæri. 

Höfundur er sveitarstjóri Mýrdalshrepps og stjórnarmaður í Kötlu UNESCO Global Geopark.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×