Skoðun

Er vit­laust gefið í stjórn­málum?

Reynir Böðvarsson skrifar

Hægri stjórnmálahreyfingar hafa alstaðar jákvæðan aðstöðumun vegna tengsla þeirra við fjármagnseigendur, ekki minnst hvað varðar áhrif á fjölmiðlun. Fjölmiðlar gegna afgerandi lykilhlutverki í að móta skoðanir almennings og hafa þannig líka áhrif á pólitíska skoðunar myndun og þeir sem hafa fjármagn hafa meiri möguleika á að stjórna eða hafa áhrif á þessi valdatæki. Ef benda á einhvern einn einstakan galla í lýðræðisferlinu á vesturlöndum þá er það þetta ójafnvægi á aðgangi að fjármagni þar sem fjármagnsöflin ausa fjármunum í hægri stjórnmálahreyfingar á sama tíma og vinstrið er stöðugt í fjárþröng og verða að treysta á velvilja launafólks sem oftar en ekki eru á lágum launum.

Í flestum löndum eiga auðugir einstaklingar og fyrirtæki stóran hlut fjölmiðla, og þeir styðja gjarnan hafa tengsl við hægrisinnaða stjórnmálahreyfingar. Vegna þess að hægri stjórnmál stefna oft í átt að markaðslausnum og verndun fjármagnseigenda, er líklegt að eigendur fjölmiðla hafi hagsmuni af því að styðja hægrisinnaðar hugmyndir. Í Bretlandi til dæmis eru sumir af stærstu dagblöðum og fjölmiðlum í eigu auðugra einstaklinga sem hafa augljós tengsl við hægristefnuna, eins og Rupert Murdoch og hans fjölmiðlaveldi. Í Bandaríkjunum hafa mörg stórfyrirtæki og fjárfestar veitt stóru flokkunum og þá sérstaklega Repúblikanaflokknum verulega fjárhagslega styrki, sem hefur styrkt herferðir þeirra. Fjármagnið gerir hægri flokkum kleift að nýta öflugari auglýsingaherferðir í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.

Vinstri stjórnmálaflokkar hafa reynt að vinna gegn þessum aðstöðumun með því að nýta samfélagsmiðla og óháða netmiðla til að koma sínum skilaboðum á framfæri. Þessi miðlun er ódýrari og getur náð til stórs hóps, en samt hafa vinstriflokkar yfirleitt miklu minna fjármagn til að reka stórar herferðir. Þegar fjölmiðlar eru í eigu eða undir áhrifum auðugra einstaklinga eða fyrirtækja, hafa þeir haft bein áhrif á það hvernig almenningur skynjar hægri og vinstri stjórnmál. Þetta kemur fram í hlutdrægri fréttaflutningi eða áherslu á ákveðin málefni sem styðja hægrisinnaða hugmyndafræði. Þetta smitar jafnvel útfrá sér yfir á óháða fjölmiðla eins og til dæmis ríkisfjölmiðla þar sem „norminu” er haldi til hægri. Við þekkjum þetta á Íslandi þar sem auðvaldið heldur uppi Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu og RÚV þorir varla að fjalla um efni sem því er ekki að skapi.

Það er því alveg ljóst að þetta ójafnvægi hefur áhrif á pólitíska umræðu í þjóðfélaginu og styrkir stöðu hægri flokka á kostnað flokka til vinstri. Ef einhver áhugi er fyrir því að reka alvöru lýðræðisþjóðfélag þá þarf að ná fram breytingum á þessu, ekki bara á Íslandi heldur víðast um veröld. Hægri hugmyndasmiðjur víðs vegar um heiminn, fjármagnaðar af auðmönnum, framleiða efni sem viðheldur þessu ójafnvægi og gerir umbætur í þágu almennings nánast ómögulegar. Leikurinn fer ekki vel því það er vitlaust gefið.

Höfundur er jarðskjálftafræðingur. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×