Innlent

Kennarar greiða at­kvæði um verk­fall

Árni Sæberg skrifar
Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands.
Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands. Vísir/Vilhelm

Félagsmenn aðildarfélaga Kennarasambands Íslands í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum framhaldsskóla greiða atkvæði um verkföll sem hefjast eiga í lok mánaðar. Atkvæðagreiðslurnar hófust á hádegi í dag en ekki er greint frá í hvaða skólum er greitt atkvæði um verkföll.

Í tilkynningu á vef KÍ segir að samninganefndir Félags framhaldsskólakennara (FF), Félags grunnskólakennara (FG), Félags leikskólakennara (FL), Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) og Skólastjórafélags Íslands (SÍ) hafi ákveðið að hefja atkvæðagreiðslu um boðun verkfalla í átta ótilgreindum skólum.

Ótímabundið í leikskólunum

Áformað sé að verkföll í þessum átta skólum hefjist á miðnætti 29. október næstkomandi, eða klukkan 00:01. Verkföll verði tímabundin í grunnskólunum og í framhaldsskólanum en í leikskólum verði boðað til ótímabundinna verkfalla.

Atkvæðagreiðslur um verkföll hafi hafist á hádegi í dag. Aðgerðirnar nái til félagsmanna aðildarfélaga Kennarasambandsins sem starfa í skólunum átta og taka laun samkvæmt kjarasamningum KÍ. Atkvæðagreiðslurnar standi til hádegis á fimmtudag, 10. október.

Næsti fundur á morgun

Kjaradeila aðildarfélaga KÍ sem semja við sveitarfélögin liggi á borði ríkissáttasemjara. Samband íslenskra sveitarfélaga hafi vísað deilunni til embættis ríkissáttasemjara 24. september síðastliðinn. Kjarasamningar aðildarfélaganna sem semja við sveitarfélögin hafi runnið út 31. maí síðastliðinn.

Félög framhaldsskólans, FF og FS, hafi vísað sinni kjaradeilu til ríkissáttasemjara 26. september síðastliðinn en þeirra samningsaðili sé ríkið. FF og FS hafi verið samningslaus síðan 31. mars síðastliðinn.

Aðildarfélög Kennarasambandsins hafi skipað eina viðræðunefnd. Viðræðunefndin sé skipuð formönnum aðildarfélaga KÍ ásamt formanni Kennarasambandsins.

Ríkissáttasemjari hafi boðað samningsaðila til fundar í gær. Næsti fundur hafi verið boðaður á morgun.


Veistu hvaða skóla er um að ræða þar sem greidd verða atkvæði um verkfall? Sendu okkur ábendingu á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×