Innlent

Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. vísir/vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að konan hafi verið með lítið barn meðferðis og óttast hafi verið að hún myndi vinna því og sjálfri sér skaða, en konan var með hníf í hendinni. 

„Fjöldi viðbragðsaðila var kallaður á vettvang, meðal annars samningamenn frá embætti ríkislögreglustjóra, en eftir töluverðar samningaviðræður tókst loks að yfirbuga konuna, en hvorki hana né barnið sakaði í aðgerðum lögreglunnar,“ segir í tilkynningunni.

Í framhaldinu hafi konunni verið komið undir læknishendur og barninu í umsjá barnaverndaryfirvalda. Lokað var fyrir umferð um Sólheima á meðan aðgerðum lögreglunnar stóð, en lokunum var aflétt um eittleytið.

Ekki er greint frá tengslum konunnar við barnið í tilkynningu til fjölmiðla.


Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við ábendingum á netfangið [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×