Skoðun

Ungt fólk er að missa trúna á stjórn­málum – og um leið á fram­tíðinni

París Anna Bergmann skrifar

Ungt fólk er að missa trúna á stjórnmálum – og um leið á framtíðinni. Þetta er afleiðing sjö ára stjórnartíðar ríkisstjórnar sem hefur ítrekað brugðist ungu fólki í landinu og látið hjá líða að grípa til raunhæfra aðgerða til að bæta lífsskilyrði þess. Í dag berst ungt fólk við að borga húsnæðislán sem aðeins sum hafa komist í gegnum hjálp foreldra eða annarra náinna. Hin greiða himinháa leigu eða búa áfram í foreldrahúsum vegna gjörsamlega óviðráðanlegs húsnæðismarkaðar.

Ungt fólk berst í bökkum við að borga af húsnæðisláninu sínu, þ.e. þau sem hafa verið svo heppin að komast inn á klikkaðan húsnæðismarkaði með aðstoð foreldra eða annarra nákominna. Þau sem ekki eru svo heppin borga himinháa leigu á jafn klikkuðum leigumarkaði eða neyðast til að búa í foreldrahúsum. Ein mesta verðbólga sem mælist í allri Evrópu um þessar mundir og gífurlegir stýrivextir bitna þannig harkalega á öllu ungu fólki á meðan ríkisstjórnin hefur ekki haft kjark eða trúverðugleika til þess að takast á við þessar áskoranir. Þau hafa í staðinn eytt tíma sínum í að benda á hvort annað eða Seðlabankann og á meðan versnar staða ungs fólks.

Ekki bara það, heldur sjáum við velferðarkerfið molna undan fjársvelti. Á sjúkrahúsinu á Akureyri eru árlegar fjárveitingar ekki nægjanlegar til að veita mikilvæga og nauðsynlega þjónustu, eins og geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni, og menntastofnanir eru í stöðugri baráttu við að verja starfsemi sína í skugga niðurskurðar. Tilraunir til að sameina framhaldsskólana hér í þágu kostnaðarklípu eru aðeins ein birtingarmynd þess.

Þegar kosningar nálgast byrjar fólk í stjórnmálaflokkunum að tala fallega og sækjast eftir fylgi ungs fólks, lofa því öllu fögru þó reynslan sýni að þau tala oft með einum hætti til unga fólksins en öðrum til annarra. En ungt fólk er vakandi, það skilur pólitík og veit hvað það vill. Við viljum stjórnmálaflokka sem hafa hugrekki til að tala skýrt og vera hreinskilnir um bæði hvað þeir ætla að gera og hvað þeir ætla ekki að gera. Við þurfum stefnu sem er byggð á raunverulegri framtíðarsýn fyrir þjóðina, ekki bara tómum loforðum. Ekki bara lofa öllum öllu heldur bjóða upp á skýra framtíðarsýn fyrir íslensku þjóðina. Þetta hefur Samfylkingin gert.

Samfylkingin er með skýrt framtíðarplan, hún hefur sýnt að hún er tilbúin að takast á við verkefnin framundan, og það er ástæðan fyrir því að ég ákvað að ganga til liðs við hana. Ég hvet ungt fólk til að sameinast og styðja Samfylkinguna í komandi kosningum, því þetta er flokkurinn sem er tilbúinn að grípa til aðgerða sem hafa raunveruleg áhrif strax. Það er of mikið í húfi til að láta þessi tækifæri fram hjá okkur fara.

Höfundur er forseti Sölku - Ungs Jafnaðarfólks á Akureyri. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×